Stytting götulýsingar sparar 5 milljónir á ári Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 12. desember 2015 07:00 Daglegur tími götulýsingar í Reykjavík var styttur um um það bil 14 mínútur á dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Reiknaður sparnaður frá því að tími götulýsingar í Reykjavík var styttur árið 2009 er 5 milljónir króna á ári. Samkvæmt upplýsingum frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur var leitað margvíslegra leiða til að draga úr kostnaði eftir hrun. Í þessu tilviki hefur sparast í orkukaupum auk þess sem sjaldnar þarf að skipta um ljósaperur. Að meðaltali er kveikt á götulýsingu 7 mínútum síðar á kvöldin. Að morgni logar að meðaltali 7 mínútum skemur. Götulýsing logaði áður fyrr í um 4.000 klst. á ári en logar nú í 3.700 klst. Þar af eru 85 klst. vegna breytts viðmiðs í birtustigi en annar sparnaður er vegna betri stýribúnaðar. Götulýsingin stjórnast af ljósmæli sem tekur mið af dagsbirtu. Reglan er sú að það kviknar á götuljósum um leið og byrjar að dimma. Viðmiðið er 20 lux. Undantekning frá þessari stýringu er gerð nokkra daga að vetrinum en þá er götulýsing látin loga lengur til að ekki slokkni á morgnana frá 7.45 til 8.30 þegar börn eru á leið í skólann.Þetta er auðvitað ekki mikill sparnaður í krónum. Kerfislega er mikilvægið aftur á móti meira. Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs„Þetta er auðvitað ekki mikill sparnaður í krónum. Kerfislega er mikilvægið aftur á móti meira,“ segir Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs. „Það er nefnilega þannig að lýsing er frekar óheppilegur notandi í raforkukerfi Íslendinga sem byggist að mestu á vatnsafli. Orkuþörf lýsingar er einmitt mest þegar framleiðslugeta vatnsafls er minnst, það er að segja á veturna. Þess vegna er mikilvægt að draga úr aflþörf á veturna.“ Sigurður segir dægursveifluna svo annað mál. „Á nóttunni minnkar aflþörf verulega og því er götulýsing ekki mikið aukaálag. En á veturna fara ljósaskipti og almennt álag á kerfinu saman. Ef hægt er að minnka orkunotkun á þeim mörkum sparast aflþörf. Hins vegar styttist hratt í að LED-lýsing taki algerlega við, sem er miklu orkunýtnari og þá endingarbetri. Þá er ekki ólíklegt að þetta gangi til baka, það er að segja að ljósgæði verði bætt og aukin enda mun ódýrara og sveigjanleikinn meiri.“ Í tengslum við styttingu tíma götulýsingar voru haldnir fundnir um umferðaröryggi með lögreglu, tryggingafélögum og umferðarstofu. Sammælst var um að grípa til aðgerða ef þess þyrfti. Ekki hefur þótt ástæða til að kalla eftir slíku, samkvæmt upplýsingum frá umhverfis- og skiplagssviði.
Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Handtekinn eftir röð innbrota Innlent Spurning með sálina Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Fleiri fréttir „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Sjá meira