Um 80 manns fögnuðu með Geir á Akureyri: „Ólýsanleg tilfinning“ Birgir Olgeirsson skrifar 10. nóvember 2015 13:17 Mynd sem var tekin við lok veislunnar á heimili Kristínar S. Bjarnadóttur þar sem heimkomu Geirs Gunnarssonar var fagnað. F.v. Guðrún Friðgeirsdóttir móðir Geirs sem búsett er í Bandaríkjunum, hjónin Birgir Hauksson og Kristín S. Bjarnadóttir sem hafa verið í bréfasambandi við Geir í tæp níu ár og undirbjuggu heimkomu hans. Geir Gunnarsson er svo sjálfur lengst til hægri á myndinni. Vísir/Aðsend
Það var heldur betur glatt á hjalla á heimili Kristínar S. Bjarnadóttur og fjölskyldu hennar í Sigluvík í Eyjafirði, til móts við Akureyri, í síðustu viku. Þar var haldinn fögnuður í tilefni af heimkomu Geirs Gunnarssonar sem var nýverið látinn laus úr Greensville-fangelsinu í Virginíu-fylki Bandaríkjanna þar sem hann sat inni í rúm sautján ár. Árið 1998 hlaut Geir tuttugu ára fangelsisdóm í Bandaríkjunum fyrir alvarlega líkamsárás. Geir hefur nú verið frjáls maður í um það bil mánuð og kom nýverið heim til Íslands þar sem hann hefur aftur komist í kynni við fjölskyldu og vini, og jafnvel þá vini sem hann hafði eignast á meðan hann var í fangelsi en aldrei hitt.Heimkoman undirbúin í nokkur ár Kristín S. Bjarnadóttir fór fyrir hópi sem undirbjó heimkomu Geirs en hún og aðrir sem stóðu að þessum undirbúningi höfðu fylgst með Geir í tæp níu ár og má segja að sá undirbúningur hafi staðið yfir frá því Sigmar Guðmundsson tók viðtal við Geir í fangelsinu í Bandaríkjunum árið 2007 fyrir Kastljósið.Sjá einnig: Geir á heimleið eftir 17 ár í fangelsi: Vill hjálpa öðrum sem leiðst hafa út á ranga braut Sigmar tók aftur viðtal við Geir á dögunum í tilefni af heimkomunni og var því útvarpað í Morgunútvarpi Rásar 2. Þar sagði Geir viðtalið hafa breytt miklu fyrir því eftir það hefði honum ekki fundist hann vera einn í lífinu. Hann fann fyrir miklum stuðningi frá Íslandi og vissi að hann ætti möguleika þar eftir að hann losnaði úr afplánun.Guðrún Friðgeirsdóttir móðir Geirs, Sóley María Kristínardóttir, Geir Gunnarsson Þórisson, Kristín S. Bjarnadóttir og Shelby Thorisson, bróðurdóttir Geirs. Myndin er tekin nú í ágúst þegar mæðgurnar heimsóttu Geir í annað sinn.Vísir/AðsendLýsir Kristínu sem engli sem var sendur til hans Í viðtalinu í morgun sagði Geir frá heimkomufögnuðinum sem haldinn var fyrir hann á heimili Kristínar í síðust viku. „Fullt af fólki, fullt af mat og mikið fjör,“ sagði Geir sem lýsti Kristínu sem engli. „Hún er í alvöru talað engill sem var sendur til að redda þessu fyrir mig. Það var mjög gott að hafa hana í mínu horni og gott að hafa hana til að hjálpa mér að komast af stað,“ sagði Geir um Kristínu. Hún hafði átt í bréfasamskiptum við Geir í áraraðir og hafði tvisvar heimsótt Geir í fangelsið ásamt dóttur sinni Sóleyju Maríu Kristínardóttur. Mæðgurnar höfðu stofnað hópinn Vinir Geirs á Facebook sem safnaði í sjóð fyrir Geir svo hann hefði eitthvað þegar hann kæmi hingað til lands, enda alls laus eftir fangelsisvistina. „Alveg magnað“ Kristín segir í samtali við Vísi að þau sem standa að sjóðnum hefðu ákveðið fyrir löngu að hafa opið hús heima hjá henni þegar Geir kæmi til landsins. Fögnuðurinn var í síðustu viku og mættu um áttatíu manns heim til Kristínar til að fagna með Geir. „Þetta var náttúrlega bara ólýsanleg tilfinning fyrir alla sem að þessu hafa staðið. Við höfum fylgst með honum í tæp níu ár og búið að bíða lengi eftir þessum degi ,“ segir Kristín. Hún segir að Geir hefði liðið eins og hann væri að koma heim þegar hann kom til Akureyrar en hún hafði sent honum bækur í fangelsið með myndum frá Íslandi, þá sérstaklega Reykjavík og Akureyri. „Honum fannst hann svolítið vera að koma heim þegar hann kom. Hann var búinn að skoða svo mikið af myndum og svona. Honum fannst hann aðallega vera kominn heim þegar hann kom til Keflavíkur en svo er þetta svona annað að koma heim því hann er búinn að vera í svo miklu sambandi við fólk hérna fyrir norðan sem hefur verið að skrifa honum og fá myndir og svona. Þannig að þetta var alveg magnað.“
Tengdar fréttir Geir látinn laus á morgun: Enginn Íslendingur fengið jafnþungan dóm Geir hélt lítið kveðjuhóf í dag fyrir hina fangana með veitingum úr sjálfsölum í fangelsinu auk þess sem hinir fangarnir héldu kveðjuhóf fyrir hann í gær. 13. september 2015 21:00 Geir frjáls maður og kominn til Íslands: „Sé framtíðina mjög bjarta“ Geir Gunnarsson var dæmdur í 20 ára fangelsi árið 1998 fyrir líkamsárás. Vonast til að komast í vinnu á Íslandi og stofna fjölskyldu. 10. nóvember 2015 10:48 Geir á heimleið eftir 17 ár í fangelsi: Vill hjálpa öðrum sem leiðst hafa út á ranga braut Kristín S. Bjarnadóttir og fjölskylda hennar vinna nú að komu Geirs Gunnarssonar fanga til landsins. 18. mars 2015 12:30 Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Innlent Ætla aftur að mála regnbogafánann Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Fleiri fréttir Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G Sjá meira
Geir látinn laus á morgun: Enginn Íslendingur fengið jafnþungan dóm Geir hélt lítið kveðjuhóf í dag fyrir hina fangana með veitingum úr sjálfsölum í fangelsinu auk þess sem hinir fangarnir héldu kveðjuhóf fyrir hann í gær. 13. september 2015 21:00
Geir frjáls maður og kominn til Íslands: „Sé framtíðina mjög bjarta“ Geir Gunnarsson var dæmdur í 20 ára fangelsi árið 1998 fyrir líkamsárás. Vonast til að komast í vinnu á Íslandi og stofna fjölskyldu. 10. nóvember 2015 10:48
Geir á heimleið eftir 17 ár í fangelsi: Vill hjálpa öðrum sem leiðst hafa út á ranga braut Kristín S. Bjarnadóttir og fjölskylda hennar vinna nú að komu Geirs Gunnarssonar fanga til landsins. 18. mars 2015 12:30