Innlent

Ætla að sexfalda fiskeldi í sjókvíum

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Eldiskvíar í Patreksfirði þar sem Dýrfiskur og Fjarðalax hafa hug á að margfalda framleiðslu sína. Fyrirhuguð aukning nær einnig til eldis í Tálknafirði.
Eldiskvíar í Patreksfirði þar sem Dýrfiskur og Fjarðalax hafa hug á að margfalda framleiðslu sína. Fyrirhuguð aukning nær einnig til eldis í Tálknafirði. vísir/pjetur
Til stendur að ríflega sexfalda eldi á laxi og regnbogasilungi hjá Fjarðalaxi og Dýrfiski í Patreksfirði og Tálknafirði. Auka á framleiðsluna um 16.000 tonn, úr 3.000 í 19.000 tonn.

Til kynningar er hjá Skipulagsstofnun frummatsskýrsla fyrirtækjanna vegna mats á umhverfisáhrifum aukningarinnar, en frestur til að gera athugasemdir við hana rennur út 2. desember næstkomandi.

Fram kemur í skýrslunni að fyrirtækin hafi undanfarin misseri unnið að uppbyggingu á lax- og silungseldi á Vestfjörðum og að áætlanir fyrirtækjanna geri ráð fyrir umtalsverðri framleiðsluaukningu á eldisfiski. „Það er liður í að styrkja núverandi starfsemi á Vestfjörðum og gera rekstur fyrirtækjanna arðbæran og samkeppnishæfan til lengri tíma,“ segir þar. Þá eru áform fyrirtækjanna sögð byggja á því að framleiðslan og afurðir fyrirtækjanna verði umhverfisvænar og framleiddar í sátt við vistkerfi framleiðslusvæða.

„Niðurstaða umhverfismatsins er sú að fyrirhugað eldi í Tálknafirði og Patreksfirði mun hafa verulega jákvæð áhrif á hagræna og félagslega þætti,“ segir í niðurstöðum skýrslunnar. Aukin atvinna, verðmætasköpun og margfeldisáhrif af eldinu hafi nú þegar átt þátt í að snúa við íbúafækkun á svæðinu og búast megi við að frekari uppbygging leiði til enn jákvæðari þróunar. „Áhrif á aðra nýtingu verða óveruleg en að hluta til einnig talsvert jákvæð og að mestu leyti afturkræf.“

Vísað er til þess að umfangsmiklar mælingar á sjófræði fjarðanna bendi sterklega til þess að 20.000 tonna framleiðsla í fiskeldi hafi óveruleg áhrif á súrefnisinnihald sjávar og því lítil áhrif á lífríki fjarðanna, þó svo að áhrif úrgangsefna undir og næst eldiskvíum komi til með að hafa tímabundin neikvæð áhrif á vistkerfið á hafsbotni.

Um leið kemur fram að sjúk­dómasmit frá eldisfiski geti haft bein áhrif á villta laxfiskastofna, en komi til slíks smits séu áhrifin talin afturkræf. Þá myndu þau vera óveruleg þar sem búsvæði villtra laxfiska séu fjarri eldissvæðum og stærð villtra laxfiskastofna sé áætluð lítil í Patreks- og Tálknafirði. „Góð staða í sjúkdómamálum hérlendis og bólusetning eldisseiða styrkir þessa niðurstöðu.“

Og þótt eldissvæðin verði sýnileg víða í fjörðunum verði ekkert svæði fyrir verulegri breytingu á ásýnd eða ímynd. „Í heildina verða áhrif á landslag og ásýnd óveruleg og afturkræf.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×