Sýknuð af ákæru um rangar sakargiftir Jóhann Óli Eiðsson skrifar 29. október 2015 18:01 Konan hafði verið sakfelld í héraði. vísir/e.ól
27 ára kona var í dag sýknuð í Hæstarétti af ákæru um rangar sakargiftir. Áður hafði hún verið sakfelld í héraði og dæmd í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi. Konunni var gert að sök að hafa haft uppi rangar sakargiftir með því að hafa gefið rangan framburð hjá lögreglu í Danmörku um að maður hefði gert tilraun til að þvinga sig til kynferðismaka. Maðurinn neitaði sök en í skýrslu konunnar hjá lögreglu var staðhæft að hún hefði játað að hafa borið manninn röngum sökum. Í skýrslutöku hjá lögreglu sagði konan að maðurinn hefði tekið handlegg hennar og snúið honum aftur fyrir bak hennar. Hún hefði veitt mótspyrnu en maðurinn sett hönd sína yfir munn hennar og haldið henni fastri. Þá hafi maðurinn káfað á brjóstum hennar en skömmu síðar kom maður aðvífandi með þeim afleiðingum að styggð hafi komið að manninum og hann sleppti konunni. Ekki eru til hljóðupptökur af skýrslunum frá í Danmörku og að auki hafði konan ekki undirritað þær. Skýrslurnar geymdu ekki samtal hennar og lögreglunnar staf fyrir staf heldur voru þær aðeins stutt samantekt af því sem hafði komið fram. Var það mat Hæstaréttar að erfitt væri að ráða úr því að konan hefði játað að bera manninn röngum sökum. Konan bar því við fyrir dómi að hún hefði ekki játað að hafa borið manninn röngum sökum heldur hefði hún aðeins ætlað að draga kæru sína til baka. Dómurinn féllst á að ekki væri hægt að sakfella konuna á skýrslunum einum saman og var hún því sýknuð.
Mest lesið Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Innlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent „Hverjir eru á bak við það?“ Erlent Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Veður Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Innlent Fleiri fréttir Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Sjá meira