Rauði krossinn sendir 11 tonn af fatnaði til Hvíta-Rússlands Atli Ísleifsson skrifar 30. júlí 2015 15:18 Fatagámar Rauða krossins. Mynd/Þórir Guðmundsson
Rauði krossinn á Íslandi hefur sent af stað fatagám til héraðsins Grodno í vesturhluta Hvíta-Rússlands sem inniheldur rúmlega 11 tonn af fatnaði. Í tilkynningu frá Rauða krossinum segir að mikil fátækt ríki á dreifbýlum svæðum Hvíta-Rússlands og sé Grodno þar engin undantekning. „Sérstaklega berskjaldaðir hópar eru til að mynda einstæðar mæður og eldri borgarar en áætlað er að um 12 þúsund skjólstæðingar komi til með að njóta góðs af sendingunni. Rauði krossinn á Íslandi hefur átt náið samstarf við hvítrússneska Rauða krossinn og hefur sent sérvalinn fatnað í austurátt allt frá árinu 2012 en þá létust tugir Hvítrússa í kjölfar mikillar kuldatíðar. Í fatagámnum er eru sérútbúnir fatapakkar sem sjálfboðaliðar Rauða krossins um allt land hafa útbúið í verkefninu Föt sem framlag. Þar má finna notaðan fatnað jafnt sem nýprjónaða sokka og vettlinga, hlý teppi, úlpur, peysur, skó, barnasamfestinga og margt fleira. Er þetta fjórði fatagámurinn sem er sendur til Hvíta-Rússlands á þessu ári en þörfin hefur aukist gríðarlega á undanförnum mánuðum vegna mikils fjölda flóttamanna sem streymir til landsins frá stríðshrjáðri Úkraínu. Að lokum vill Rauði krossinn á Íslandi skila þakklæti til almennings í landinu. Fatasöfnun Rauða krossins hefur gengið framar vonum undanfarin ár og það er með framlagi almennings sem reynist unnt að styðja við berskjaldaða, bæði hér heima og erlendis. Þá er ótalinn stuðningur Eimskipa, sem greiðir götu fatagáma á áfangastað, og fyrirtækja á borð við Zöru, Hagkaup og ekki síst Lín Design sem hafa verið til fyrirmyndar við endurnýtingu á fatnaði og vefnaðarvöru. Rétt er að minna á að hægt er að nýta eða endurnýta allan fatnað og alla vefnaðarvöru, sama hvernig ásigkomulagið er. Fatagáma Rauða krossins má finna um allt land, nánari upplýsingar um staðsetningu þeirra má finna hér,“ segir í tilkynningunni.Fatagámur Rauða krossins.Mynd/Rauði krossinn
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Veður Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent Fleiri fréttir Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Sjá meira