Vill stofna geðbjörgunarsveit Kristjana Guðbrandsdóttir. skrifar 26. júlí 2015 19:14
Fólki í sjálfsvígshugleiðingum hefur verið vísað frá bráðamóttöku geðsviðs. Hrannar Jónsson formaður Geðhjálpar segist þekka mörg dæmi þess að fólk biðji um hjálp og fái hana ekki. „Mér finnst mjög slæmt að við skulum ekki geta sem þjóðfélag sinnt þessum málum betur. Þegar einhver týnist upp á heiði, þá fara jafnvel fjögur, fimmhundruð manns að leita og stundum dögum saman. Það er vegna þess að okkur er annt um mannslíf. Á sama tíma er fólk sem upplifir sig í mikilli hættu og er að skaða sjálfa sig sem fer og biður um hjálp en fær hana ekki.“ Hann segir alla Íslendinga þekkja til þeirrar örvæntingar sem fylgir bráðum geðvanda. Hrannar vill minna þá sem er vísað í burtu frá bráðamóttöku að þeir geta leitað til Geðhjálpar eftir liðsinni og ráðgjöf. Hann hefur hug á að stofna sérstaka Geðbjörgunarsveit og telur fulla þörf á henni. „Fullt af fólki hefur upplifað örvæntingu á eigin skinni, kannski ekki hugleitt sjálfsvíg en margir hafa komist í gegnum mikla erfiðleika. Ég er mikið að hugsa um eitthvað sem gæti heitið geðbjörgunarsveit, þetta eru ómótaðar hugmyndir en það er eitthvað sem við höfum áhuga á að gera.“ Framkvæmdastjóri geðsviðs, María Einisdóttir, segir áhættu í hverju tilviki metna. Ef innlögn sé ekki metin hjálpleg þá sé fólki ráðlagt að fara annað. „Fólk fer í sérstakt sjálfsvígsáhættumat. Áhættan er metin og síðan ef það er litið svo á að innlögn á geðdeild sé ekki hjálpleg. Þá er fólki vísað annað. Það getur verið meðferðaraðili út í bæ sem fólk er að hitta, þá er því kannski ráðlagt að flýta tíma eða því er vísað á heilsugæslu. Það eru ýmis önnur úrræði en innlögn á geðdeild.“ María segir skorta úrræði til handa geðsjúkum og vill sjá fleiri í íslensku samfélagi taka þátt í að veita þau. „Ég myndi vilja sjá heilsugæsluna stíga öflugar inn, ég myndi líka vilja sjá fræðslu í skólum, sjá stór fyrirtæki bjóða upp á stuðning fyrir sína starfsmenn og færa þessa þjónustu nær fólki. Það hefur gefið betri raun. Fólk bíður alltof lengi, heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður en því miður er hún það ekki alltaf því er og málið komið i mikinn hnút þegar fólk skilar sér loksins á bráðaþjónustuna.“ Hún segir framtíðarsýnina vera þá að sameina bráðamóttöku spítalans í einn meðferðarkjarna. Nú er bráðamóttaka geðsviðs er aðeins opin hluta úr degi öfugt við aðrar bráðamóttökur Landspítala sem eru opnar allan sólarhringinn. „Þetta var nú hluta til sparnaður. En auk þess sáum við að hún var ekki nýtt á öðrum tímum. Raunverulega er þjónustan til staðar allan sólarhringinn, þegar við lokum á geðdeildinni. Hún færist bara yfir í Fossvoginn.“
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira