Skemmdir á bíl dómara eftir leik í fjórðu deildinni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. júlí 2015 11:15 Framkvæmdir standa yfir á Vodafone-vellinum, heimavelli Vals. Vísir/Andri Marinó
Knattspyrnudómari kom að skemmdum á rúðu á bíl sínum að lokinni viðureign KH og Vantalilja í B-riðli 4. deildar karla í knattspyrnu sem fram fór á gervigrasvelli Vals á Hlíðarenda í gærkvöldi. KH vann leikinn 4-1 og eins og gengur voru sumir leikmenn Vatnalilja ósáttir með frammistöðu dómarans. Einn leikmanna liðsins kallaði dómarann fávita á Facebook í gærkvöldi og sagði „alveg magnað hvaða fávitar fá að dæma þessa leiki!!!“ Dómarinn, Bryngeir Valdimarsson, fór með bílinn til lögreglu sem tók af honum skýrslu vegna málsins. Annars vildi Bryngeir lítið tjá sig um málið við Vísi og vísaði á dómarastjóra KSÍ, Magnús Má Jónsson. Magnús segir í samtali við Vísi að málið sé á byrjunarreit.Engar ásakanir „Við erum að kanna málið, hvort þetta tengist leiknum eða ekki. Það eru engar ásakanir eða neitt í farvatninu,“ segir Magnús. Rúðan sé ekki fullkomlega brotin heldur eru komnir brestir í hana. Það geti vel átt sínar eðlilegu skýringar. Undir það tekur Fannar Eðvaldsson, leikmaður Vatnalilja, sem telur ólíklegt að einhver af sínum liðsfélögum hafi verið að verki. Framkvæmdir standa yfir á Hlíðarenda þar sem verið er að leggja gervigras á aðalvöll þeirra Valsmanna. Vörubílar aka því reglulega til og frá svæðinu og gæti því verið að steinn hafi smollið í rúðunni. Honum þyki það líklegra en að einhver leikmanna hafi tekið reiði sína út á bíl dómarans. Hann hafi ekki merkt reiði á meðal leikmanna í klefanum eftir leik og oft spilað meiri „hitaleiki“ en þennan. Þjálfari liðsins, Hörður Ingþór Harðarson, tekur undir með Fannari. Þá bætir hann við að hann telji einnig ólíklegt að nokkur leikmaður liðsins hafi vitað á hvaða bíl dómarinn væri. Menn væru í fótbolta til að skemmta sér og færu ekki skemma bíl dómarans.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira