„Við látum aldrei þekkt andlit ganga fyrir alvarleika máls“ Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 29. júlí 2015 13:14 Dorrit þurfti aðhlynningu á slysadeild í gær eftir að hafa hrasað á göngu. Vísir/Ernir/Anton
Bráðamóttaka Landspítalans vinnur eftir forgangsröðunarkerfi sem byggir á alvarleika mála þegar kemur að því að veita bráðatilfellum meðferð. Athygli vöktu í gær fréttir um að Dorrit Moussaieff, forsetafrú, hefði verið tekin fram fyrir aðra sjúklinga á bráðamóttöku, þar á meðal sex ára dreng með brotinn sköflung. Samkvæmt heimildum Vísis hafði forsetafrúin hrasað á göngu ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta, og hruflað sig á hendi. Um minniháttar meiðsl var að ræða. Margrét Heiður, móðir drengsins sem beið á slysadeild eftir aðhlynningu, sagði í samtali við Stundina í gær að forsetafrúin hefði verið tekin framfyrir fólk sem virtist mun slasaðra heldur en hún. Drengurinn hennar hafði lent í reiðhjólaslysi með þeim afleiðingum að reiðhjólastýrið lenti í höfði hans og sköflungur hans brotnaði. Margrét hafði í fyrstu farið með strákinn sinn á Heilbrigðisstofnun Suðurlands en vegna alvarleika áverka hans var ákveðið að senda hann til Reykjavíkur. Þau biðu á biðstofu en Margrét segir að tveimur mínútum eftir komu Dorritar hafi hún verið kölluð inn.Tveggja tíma bið fyrir aðra konu„Það var kona sem sat rétt hjá okkur sem sagðist hafa beðið í tvo tíma þegar við komum inn. Hún var greinilega mjög kvalin. Við ræddum hvað okkur þætti það vera asnalegt að það væri forgangur af þessum ástæðum. Það ætti að forgangsraða eftir alvarleika áverka, hefði maður haldið,“ sagði hún. Bára Benediktsdóttir, mannauðstjóri flæðisviðs, sem bráðamóttaka heyrir undir, segist ekki geta tjáð sig um einstaka mál en þvertekur fyrir að manneskja með þekkt andlit geti búist við einhvers konar sérmeðferð. Við notumst við kerfi, stýrt kerfi, og það fer eftir alvarleika málanna hvernig er tekið inn. „Við látum aldrei þekkt andlit ganga fyrir alvarleika máls.“Sjúklingum leyft að bíða annars staðarHins vegar segir Bára að hvert tilvik sé metið sérstaklega og að bráðamóttakan leitist við að veita sjúklingum sínum þá aðstoð sem þörf er á hverju sinni. „Ég er ekki að ræða forsetafrúnna neitt sérstaklega, en oft kemur fólk hingað inn grátandi, í miklu uppnámi eða kvíðakasti og þá tökum við fólk og leyfum því að bíða annars staðar.“ Hún segir að fólk sé oft tekið innfyrir af ýmsum ástæðum. Hún getur þó ekki staðfest hvort forsetafrúin hafi þurft að bíða eftir aðhlynningu eftir að inn var komið. „Við ræðum ekki persónuleg mál einstakra sjúklinga, við megum það ekki.“
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira