Mikill erill hjá lögreglu vegna ölvunaraksturs Heimir Már Pétursson skrifar 18. júlí 2015 09:56 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast liðna nótt. vísir/kolbeinn tumi
Ungur maður ók léttu bifhjóli á gangandi vegfaranda á gatnamótum Laugavegar og Lækjargötu um kvöldmatarleytið í gær. Sá sem ekið var á slapp með skrekkinn en kenndi eymsla á öðrum fæti. Skömmu fyrir klukkan þrjú í nótt var ungur ökumaður handtekinn við Reynisvatnsveg eftir að hafa ekið bifreið sinni á ljósastaur. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ökumaðurinn sé grunaður um ölvun við akstur og hafi hann verið vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls. Bifreið mannsins var flutt af vettvangi með kranabíl. Í gærkvöldi var tilkynnt um bifreið sem ekið hafði verið á skúr Orkuveitunnar við Stekkjarbakka. Ökumaðurinn og farþegi fóru hlaupandi af vettvangi áður en lögregla kom. Töluvert margir voru stöðvaðir hist og her um höfuðborgarsvæðið grunaðir um að aka undir áhrifum vímuefna. Til að mynda var ökumaður stöðvaður á Grensásvegi upp úr miðnætti en hann er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, aka sviptur ökuréttindum og vörslu fíkniefna. Þá stöðvaði logregla bifreið á Sæbraut snemma í gærkvöldi eftir að bíllinn mældist á 109 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 60 kílómetrar. Ökumaðurinn er einnig grunaður um ölvun við akstur og að aka sviptur ökuréttindum að sögn lögreglu.
Mest lesið Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Innlent Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Innlent Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Innlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent Tilgangurinn að ná í „easy money“ Innlent Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Erlent „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Innlent Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra Innlent Hættir sem ritstjóri Kveiks Innlent Betra að borga tryggingarnar en að sitja uppi með allsherjartjón Innlent Fleiri fréttir Hækkar frítekjumark vegna hækkunar örorkulífeyris „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Kjaraviðræður Sinfó „stefni í rétta átt“ Stöðupróf verði skylda í öllum skólum strax í vor „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Núverandi staða ekki talin vera alvarleg Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Opna Vesturbæjarlaug á morgun en Sundhallargestir þurfa að bíða Tilgangurinn að ná í „easy money“ Jökulhlaupið í rénun Í beinni frá héraðsdómi, unglingadrykkja og áheitakóngur Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Hættir sem ritstjóri Kveiks Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra Meirihluti hefur áhyggjur af laxastofninum nema í fjörðunum Jóhann tekur við af Gunnari hjá Landssambandi veiðifélaga Skýrslur teknar af tíu börnum undir sex ára á síðustu 20 árum Lögregla kölluð til vegna einstaklinga sem tjölduðu í skógarrjóðri Betra að borga tryggingarnar en að sitja uppi með allsherjartjón Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Metaðsókn og söfnunarmet slegið 13,3 milljarðar frá Íslandi til Úkraínu: Danska leiðin „ein sú besta“ til að styrkja varnir Evrópu Steindór Örn endurkjörinn formaður Hallveigar Það logaði glatt í Bergþórshvoli á Njáluhátíð í Rangárþingi Skiptar skoðanir um stækkun Þjóðleikhússins Myndskeið af rallýslysi, sjálfstæð Úkraína og brennan á Bergþórshvoli Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Vestfirðingar fagna í kvöld: „Þetta er bara mjög stórt“ Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Sjá meira