Rannsókn MAST á sauðfjárdauða enn ekki borið árangur Jóhann Óli Eiðsson skrifar 9. júlí 2015 16:28 Kindur á leið af fjalli. vísir/gva
Rannsókn á útbreiddum og óvenjumiklum fjárdauða í vetur og vor hefur enn ekki leitt í ljós hver ástæðan er. Fyrsta áfangaskýrsla Matvælastofnunnar um rannsóknina er kominn á vef stofnunarinnar. Þar eru greind svör við spurningakönnun sem gerð var meðal sauðfjárbænda í gegnum Bændatorg Búnaðarstofu. Eftir að farið hafði verið í gegnum hana, svör grisjuð og tvöföld svör tekin út, sátu eftir svör frá 311 bændum. Þessir bændur misstu samtals 4.095 kindur í vetur og vor sem er um 4,1% af bústofni þessara bænda. Þetta er um tvöfalt meira en þeir misstu á heilu ári þar á undan. Þetta stemmir í grófum dráttum við fyrri bráðabirgðabirgðatölur sem gerðar hafa verið opinberar. Dýralæknar tóku blóðsýni á nokkrum bæjum og sendu kindur í krufningu að Keldum, þegar það átti við. Sýnin hafa verið send til Noregs til rannsókna en niðurstöðu úr þeim er ekki að vænta fyrr en í lok þessa mánaðar. Margar þeirra kinda sem krufnar voru drápust úr næringarskorti, þótt þær hafi augljóslega étið fram á síðustu stundu en krufningin hefur ekki varpað skýrara ljósi á orsök vandans. Hjá helmingi svarenda drapst meira en eðlilegt getur talist eða meira en 2%. Hjá 10% svarenda voru afföllin meiri en 8% og hæsta tíðnin var 30%. Þar sem ekki hefur tekist að finna orsök þessarar aukningar í dauða er nauðsynlegt að halda rannsókninni áfram í haust og næsta vetur í samstarfi Matvælastofnunnar, Tilraunastöðvar Háskóla Íslands að Keldum og Landssamtaka sauðfjárbænda. Það verður væntanlega gert m.a. með nýrri spurningakönnun og með því að fylgjast með ákveðnum búum.
Tengdar fréttir Skýringa enn leitað á dularfullum sauðfjárdauða Ríflega hundrað bændur um allt land hafa orðið varir við óvenjulegan dauða á bæjum sínum. 16. júní 2015 19:15 Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira
Skýringa enn leitað á dularfullum sauðfjárdauða Ríflega hundrað bændur um allt land hafa orðið varir við óvenjulegan dauða á bæjum sínum. 16. júní 2015 19:15