Dæmdar bætur frá Náttúrufræðistofu vegna neitunar um námsleyfi Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 12. maí 2015 08:06 Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Pjetur
Héraðsdómur Norðurlands dæmdi bætur til handa manni sem höfðaði mál gegn Náttúrustofu Norðurlands vestra vegna þess að hann taldi sig annars vegar hafa átt rétt á sex mánaða launuðu námsleyfi frá störfum sínum og hins vegar taldi hann uppsögn sína hafa verið ólögmæta. Manninum, sem heitir Þorsteinn Sæmundsson, voru dæmdar rúmlega 4 milljónir króna í bætur. Hann hafði gegnt starfi forstöðumanns stofnunarinnar. Þorsteinn var ráðinn til Náttúrustofu Norðurlands vestra árið 2000 og var þá vísað til þess í kjarasamning að um réttindi hans giltu lög um réttindi og skyldur starfsmanna. Í þeim lögum er skýrt kveðið á um rétt til launaðs námsleyfis eftir ákveðinn tíma í starfi. Náttúrufræðistofa vildi meina að lögin giltu ekki um Þorstein af þeim sökum að í síðari kjarasamningum var ekki sérstaklega vísað í fyrrnefnd lög. En atriði í ráðningarsamningi var af héraðsdómi Norðurlands talið gilda um síðari kjarasamninga. Neitun stofnunarinnar um að veita Þorsteini leyfið var ekki á málefnalegum rökum reist.Ekki gert lítið úr fagmennsku né kunnáttu Þá var einnig fallist á með Þorsteini að uppsögn hans hefði verið ólögmæt þar sem því var haldið fram að honum hefði verið sagt upp vegna bágrar fjárhagsstöðu stofnunarinnar. Þar sem Þorsteinn var starfsmaður hins opinbera og uppsögn hans því stjórnvaldsákvörðun telst þetta ekki gild ástæða til uppsagnar. Auk þess hefur stofnunin ekki lagt upp laupana síðan honum var sagt upp og forstöðumaður starfar enn á fullum launum. Ekki var fallist á að það hefði talist ólögmæt meingerð gegn Þorsteini að tekið var fram fyrir hendurnar á honum þegar hann hugðist lána hvítabjörn sem var í vörslu Náttúrustofnunar. Dómurinn taldi heldur ekki að uppsögnin sem slík hefði talist geta gert lítið úr fagmennsku Þorsteins eða kunnáttu hans.Hér er dómurinn í heild sinni.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira