„Íslendingar eru mjög duglegir að koma sér í vandræði í Ameríku“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. maí 2015 09:14 Geir Haarde hefur gegnt stöðu sendiherra í fjóra mánuði.
Geir H. Haarde, sendiherra og fyrrverandi forsætisráðherra, segir ákvarðanir sem teknar voru í byrjun kreppu hafa reynst háréttar og örlagaríkar í jákvæðri merkingu fyrir íslenska þjóð. Hann segist víða hafa verið beðinn um að tala um þessa hluti þar sem hann sinnir nú starfi sendiherra Íslands í Bandaríkjunum og er ánægður með þann dóm sem ákvarðanir hans hafa fengið. Edda Sif Pálsdóttir tók hús á Geir um liðna helgi og fékk að kynnast lífinu í sendiherra bústaðnum í Washington DC. Þar hefur Geir búið og sinnt starfi sendiherra frá áramótum. Bústaðurinn hefur verið í eigu ríkisins í fimmtíu ár. „Það er mjög skemmtilegt að búa í svona húsi. Þetta er sögufrægt hús og margt gott fólk sem hefur búið hérna á undan okkur,“ segir Geir. Guðbjörg Bjarnadóttir, starfsmaður í sendiráðinu, aðstoðar fólk í borgaraþjónustu. Íslendinga á ferðalagi eða búsettir vestra. „Íslendingar eru mjög duglegir að koma sér í vandræði í Ameríku. Þá reynir maður að aðstoða eftir bestu getu.“Var beðinn um að taka að sér sendiherrastarfið Aðspurður hvernig hann varð sendiherra segir Geir að óskað hafi verið eftir hans kröftum. Hann hafi búið þar sem ungur maður og komið þar oft í tengslum við störf sín í seinni tíð. Geir var spurður út í ákvarðanir sínar sem forsætisráðherra þegar fjármálakreppan skall á. Hann vildi hvorki greina frá því hvort hann sæi eftir einhverju eða hverju hann væri stoltastur af. „Fjármálakreppan haustið 2008 er mér mjög eftirminnileg. Kannski ekki síst núna því það hefur æ betur komið í ljós að ákvarðanir sem teknar voru í byrjun hafa reynst hárréttar og mjög örlagaríkar í jákvæðri merkingu fyrir íslenskri þjóð.“ Þetta segir Geir koma berlega í ljós þegar hann hitti ýmsa, meðal annars í tengslum við störf sín við háskóla vestan hafs, en hann er reglulega beðinn um að tala um þessa hluti. „Ég er auðvitað bara mjög ánægður með þann dóm sem okkar ákvarðanir frá þeim tíma hafa fengið.“Viðtalið við Geir og aðra starfsmenn í sendiráðinu má sjá í spilaranum hér að neðan.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira