Bátur strandaði við Hópsnes: Öllum um borð bjargað Stefán Árni Pálsson skrifar 13. maí 2015 13:06 Báturinn strandaði við Hópsnes. Vísir/Ernir
Mannbjörg varð þegar að að bátur fór upp í fjöru við Hópsnes skammt frá innsiglingunni í Grindavík. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum voru fjórir menn voru um borð og er búið að bjarga öllum. Lögreglu barst tilkynning um slysið klukkan 12:28. Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir á Suðurnesjum voru kallaðar út vegna málsins. Þá stefndi báturinn í strand. Báturinn heitir Gottlieb 2622, sem er stærri gerðin af línubát. Áhöfnin gekk úr bátnum þegar hann hafði strandað í fjörunni.Uppfært 13:25: Tilkynning hefur borist frá Landhelgisgæslunni vegna málsins. „Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst nú kl. 12:23 neyðarkall frá bátnum Gottlieb 2622 sem var vélarvana við Hópsnes á Reykjanesi. Rak bátinn hratt að landi. Fjórir skipverjar voru um borð. Þegar í stað var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út sem og björgunarsveitir á Suðurnesjum og björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Skömmu eftir að útkallið barst var báturinn kominn upp í kletta og lagðist þar á hliðina. Nærstaddir bátar á svæðinu komust ekki að til aðstoðar. Strekkingsvindur var á svæðinu, SA 10-12 m og aðstæður á staðnum erfiðar. Skipverjar, sem voru allir í björgunargöllum náðu að koma taug í land og kl. 12:51 barst staðfesting um að þeir væru allir komnir upp í fjöru heilir á húfi. Um hálftíma eftir að útkallið barst lenti þyrla Landhelgisgæslunnar í fjörukambinum og mun hún flytja skipverjana til Grindavíkur.“Hér strandaði báturinn.Vísir/LoftmyndirAf strandstað.Mynd/Halli Bangsi
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira