Skúli á Subway hafði betur í Hæstarétti vegna kaupa á Ferguson-dráttarvél Birgir Olgeirsson skrifar 13. maí 2015 16:51 Skúli Gunnar Sigfússon, eigandi Subway. vísir/gva
Hæstiréttur Íslands hefur dæmt Hólsfell ehf. til að endurgreiða Skúla Gunnari Sigfússyni, eiganda Subway á Íslandi, kaupverð fyrir dráttarvél af tegundinni MasseyFerguson. Skúli hafði keypt dráttarvélina, árgerð 1997, og flutningavagn af Hólsfelli ehf. en hann höfðaði mál gegn fyrirtækinu og krafðist riftunar á kaupsamningum vegna galla sem hann taldi vera á dráttarvélinni. Skúli hafði aflað matsgerðar dómkvadds manns, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að dráttarvélin hefði verið haldin verulegum ágöllum sem ekki hefðu verið sýnilegir venjulegum kaupanda. Í dómi Héraðsdóms Vesturlands var talið að Skúli hefði vanrækt skoðunarskyldu sína við kaupin, enda hefði hann mátt sjá að vélin væri ekki í því ástandi sem ætla hefði mátt af auglýsingu Hólsfells ehf. Var fyrirtækið því sýknað af kröfum Skúla í héraði en Hæstiréttur komst hins vegar að gagnstæðri niðurstöðu og staðfesti riftun Skúla á kaupsamningnum. Í dómi hans kom fram að þrátt fyrir að Skúli hefði látið undir höfuð leggjast að skoða dráttarvélina nákvæmlega hefði hann mátt treysta því sem fram kom í auglýsingu Hólsfells ehf. um ástand vélarinnar og ekki þurft að staðreyna það með skoðun vélarinnar samkvæmt lögum um lausafjárkaup. Hann gæti því borið fyrir sig þá galla sem vélin var haldin og ekki voru augljósir honum sem kaupanda, en hann bjó ekki yfir sérþekkingu á slíkum vélum. Var riftun Skúla því tekin til greina og Hólsfelli gert að endurgreiða honum kaupverðið, samtals 2,2 milljónir króna auk einnar milljónar í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira