Hæstiréttur metur verðtryggðan lánasamning sanngjarnan Birgir Olgeirsson skrifar 13. maí 2015 17:32 Einar Páll Tamimi (t.v.) ásamt Gunnari V. Engilbertssyni í Héraðsdómi Reykjavíkur. Vísir/GVA
Hæstiréttur Íslands hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Gunnars V. Engilbertssonar gegn Íslandsbanka þar sem deilt var um lögmæti verðtryggingarinnar. Málið snerist um fjögurra milljóna króna verðtryggt fasteignaveðlán sem Gunnar tók árið 2007. Sýslumaður gerði fjárnám í heimili Gunnars vegna lánsins en Gunnar hafði krafist þess að fjárnámið yrði afturkallað vegna þess að hann taldi verðtrygginguna ólögmæta. Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti ákvörðun sýslumannsins í Reykjavík um fjárnám í húsnæði og hefur Hæstiréttur nú staðfest það. Leitað hafði verið til EFTA-dómstólsins um ráðgefandi álit í málinu og var álit dómsins birt í lok ágúst í fyrra. Þar kom fram að tilskipun Evrópusambandsins um óréttmæta skilmála í neytendasamningnum leggi ekki almennt bann við skilmálum um verðtryggingu veðlána í samningum milli veitenda og neytenda. EFTA dómstóllinn sagði það vera íslenskra dómstóla að taka afstöðu til þess hvort lánasamningurinn sé sanngjarn. Hæstiréttur sagði það koma til álita við úrlausn deilunnar hvort Íslandsbanki hefði látið hjá liða að veita Gunnari upplýsingar um efni og áhrif skilmála um verðtrygginguna í þeim mæli að það yrði talið ósanngjarnt af Íslandsbanka eða andstætt góðri viðskiptavenju. Með hliðsjón af þeirri greiðsluáætlun sem Gunnar undirritaði samhliða skuldabréfinu og yfirliti sem fylgdi henni, taldi Hæstiréttur að upplýsingaskyldu hefði verið fullnægt sem á honum hvíldi samkvæmt þágildandi lögum um neytendalán.
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Erlent Gefur skít í helvítishótanir Trumps Innlent Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Veður Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Innlent Fleiri fréttir „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Sjá meira