40 bátar losnuðu frá bryggju Samúel Karl Ólason skrifar 14. maí 2015 13:30
Um 40 bátar losnuðu frá flotbryggjunni á rifi á snæfellnesi í óveðri í nótt. Um tólf björgunarsveitarmenn unnu eldsnemma í morgun að því að festa bátana og náðu að tryggja þá áður en illa fór. Strandveiðar eru nýhafnar og því mikið af bátum við bryggjuna á Rifi. Í morgun tók að rigna og hvessa hressilega og segir Viðar Páll Hafsteinsson, formaður björgunarsveitarinnar Lífsbjargar að aðgerðir hafi gengið vel. „Við vorum kallaðir út um sex leytið í morgun. Þá voru tveir bátar slitnir upp en héngu í einum að aftan. Með snörum viðbrögðum náðum við að tryggja þá aftur og ganga frá þeim. Svo vorum á fjórða tug báta sem að voru við flotbryggjuna og við þurftum að tryggja þó nokkurn hluta af þeim betur,“ segir Viðar. Björgunarsveitarmenn nutu liðsinnis eigenda bátanna og gekk það vel að sögn Viðars, þar sem gripið var til aðgerða skömmu eftir að bátarnir losnuðu. Engar skemmdir urðu á bátunum en björgunaraðgerðirnar tóku um tvo tíma. „Það var hávaðarok þarna og grenjandi rigning. Svo er það dottið niður núna. Svona er þetta.“ Aðspurður hvort eitthvað hefði verið að setja út á hvernig gengið hafði verið frá bátunum segir Viðar svo ekki vera. „Það gerir svona snöggan hvell og þegar að það eru svona margir bátar er átakið svo ofboðslegt á þessu að það getur farið svona.“
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira