Fasteignagjöldin sliga rekstur Hörpu Heimir Már Pétursson skrifar 15. maí 2015 14:45
Fasteignagjöld tónlistarhússins Hörpu verða tæp fjörutíu prósent af tekjum hússins standi dómur Héraðsdóms Reykjavíkur. Framkvæmdastjóri hússins segir tæplega fjögur hundruð milljónir í fasteignagjöldum sliga rekstur hússins en gjöldin ættu að vera helmingi minni að hans mati. Harpa krafðist þess fyrir héraðsdómi að úrskurður yfirfasteignaskattsnefndar um fasteignagjöld Hörpu frá vorinu 2012 yrði ógiltur og lagði fram nýtt fasteignamat á húsinu ásamt fleiri gögnum því til stuðnings. Nefndin metur húsið á sautján milljarða og eru fasteignagjöld innheimt samkvæmt því, en Harpa telur verðmæti hússins ekki vera nema sjö milljarða. Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hörpu, segir fasteignagjöldin sliga reksturinn. „Eigintekjur Hörpu hafa aukist mjög undanfarin ár og losa nú um þúsund milljónir. En tæplega fjögur hundruð af þeim fara í fasteignagjöldin. Það sér hver maður að reksturinn getur ekki borið þetta,“ segir Halldór. Stjórn Hörpu eigi eftir að taka ákvörðun um hvort dómi héraðsdóms verði vísað til Hæstaréttar. Ljóst sé að reksturinn standi ekki undir þessum gjöldum. Ef fallist væri á rök Hörpu í málinu yrðu fasteignagjöld hússins um tvö hundruð milljónir í stað tæplega fjögur hundruð milljóna. „Harpa aflar sér tekna með útleigu rétt eins og stórar verslunarmiðstöðvar eða Leifsstöð. Okkur finnst þess vegna einkennilegt að við séum að borga margfalt hærri fasteignagjöld á fermetra en þessir staðir,“ segir Halldór Guðmundsson.
Tengdar fréttir Þriðjungur rekstrartekna Hörpu fer í fasteignagjöld Harpa mun þurfa að greiða rúmlega 380 milljónir í fasteignagjöld eftir dómsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur. Borgarstjóri Reykjavíkur segir að beðið verði eftir ákvörðun stjórnar Hörpu um áfrýjun áður en ákveðið verði hver næstu skref eru. 15. maí 2015 07:00 Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira
Þriðjungur rekstrartekna Hörpu fer í fasteignagjöld Harpa mun þurfa að greiða rúmlega 380 milljónir í fasteignagjöld eftir dómsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur. Borgarstjóri Reykjavíkur segir að beðið verði eftir ákvörðun stjórnar Hörpu um áfrýjun áður en ákveðið verði hver næstu skref eru. 15. maí 2015 07:00