Ætlar ekki að leyfa kvíðanum að stjórna lífi sínu sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 15. maí 2015 22:11
Saga Matthildur Árnadóttir vildi ekki leyfa kvíðaröskuninni sem hún hefur glímt við frá því hún var barn að stjórna sínu lífi. Hún fór því algjörlega út fyrir þægindarammann og gerði eitthvað sem henni fannst áður nær óhugsandi að gera. Hún steig á svið og söng og heillaði alla upp úr skónum. Nú í dag nýtir hún sönginn til að vinna bug á kvíðaröskuninni og hvetur þá sem þjást af því sama að láta vaða. „Þegar þú syngur fyrir fólk þá gefurðu svo mikið af þér. Mér fannst svo rosalega erfitt að opna mig fyrir því líka og var rosalega stressuð alltaf,“ sagði Saga sem ræddi málið í Íslandi í dag. Hún tók þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna í síðasta mánuði og hafnaði þar í þriðja sæti ásamt því að sigra í símakosningunni. Fyrir keppnina vissu þó fáir hver hún var enda segist hún hafa læðst með fram veggjum í FG fram að því.Kvíðaköstin dagleg „Ég fékk kvíðakast nánast daglega bara við að fara í skólann. Ég þorði aldrei að tala við neinn og þekkti engan því það fóru allir vinir mínir í MH. Ég sat bara inni á bókasafni, ein úti í horni að hlusta á tónlist í símanum mínum,“ segir hún. Hún segir að erfitt hafi verið að taka skrefið að skrá sig. Enn erfiðara hafi verið að stíga á svið og ætlaði að hætta við á síðustu stundu. Hún hafi þó pínt sig áfram og leyfði kvíðaröskuninni ekki að hafa betur. „Ég sat inni í salnum og lá frammi á stólnum því ég var svo stressuð. Þegar ég var komin upp á svið og átti að byrja þá lokaði ég augunum og byrjaði.“Stöðug vinna Saga segist staðráðin í því að vinna bug á kvíðanum. Hún er nú í meðferð hjá sálfræðingi sem að hennar sögn hefur hjálpað henni mikið. „Þetta er ekki eitthvað sem fer. Þú þarft að vinna í þessu á hverjum einasta degi en auðvitað fer aldrei alveg,“ segir hún en viðtalið við hana í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira