Ekki allir tilbúnir að viðurkenna að þeir séu bara lifandi skrítla Samúel Karl Ólason skrifar 16. maí 2015 11:18 Jón Gnarr. Vísir/Stefán
Grínistinn hefur mikilvægu hlutverki að gegna í heiminum. Jón Gnarr segir grínistann vera hluta af mannréttindum, lýðræði og tjáningarfrelsi. Hlutverk hans sé ekki einungis að veita afþreyingu heldur að hjálpa fólki að skilja og skynja eigið líf á nýjan hátt. „Heimspeki grínsins er í grundvallaratriðum sú að lífið sjálft sé svo absúrd að það sé í eðli sínu brandari, við séum brandari sem við séum yfirleitt að taka mun alvarlegar en tilefni sé til.“ Þetta kemur fram í grein Jóns í Fréttablaðinu í dag. Jón sem hefur starfað sem grínisti í 25 ár, segir það eiginlega hafa gerst óvart. Hann segist oft hafa verið gagnrýndur fyrir grín sitt. Hann hefur verið kærður margsinnis, en aldrei fengið dóm. Þá hefur honum margsinnis verið hótað og jafnvel hefur hann orðið fyrir líkamsárásum.Grínið deyr sé það krufið „Ég hef yfirleitt reynt að verja mig og gjörðir mínar en stundum er það bara ekki hægt. Það getur verið snúið að rífast um hvað sé fyndið og hvað ekki, hvað megi og hvað megi ekki. Að kryfja grín leiðir yfirleitt til þess eins að grínið deyr.“ Jón segist vera þeirrar skoðunar að í grundvallaratriðum megi gera grín að öllu. Þó skipti máli hvernig það sé gert, hvenær og af hverjum. Hann segir að voðaverkin í París fyrr á árinu hafi sýnt það mjög vel. „Egill Helgason skrifaði mikið um það mál og tók sér stöðu með Charlie Hebdo og botnaði ekkert í fólki sem var ósátt við skopið, það skildi ekki franskt samfélag og mikilvægi trúðsins fyrir lýðræðið. En svo þegar ég gerði grín að einum hans uppáhalds trommuleikara, í mínum síðasta pistli, þá fauk í hann og honum sárnaði og hann sendi mér tóninn.“ Jón tekur þó fram að hann sé ekki að væla eða kvarta. „Ég hef valið mér þetta hlutskipti, ég fæddist í það og ég held að ég hafi aldrei átt neitt val um annað. Ég er Charlie.“
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira