Innlent

Ferðamaður enn á gjörgæslu eftir bílslys á Suðurlandi

Bjarki Ármannsson skrifar
Annar hinna slösuðu dvelur enn á gjörgæslu.
Annar hinna slösuðu dvelur enn á gjörgæslu. Vísir/GVA
Annar tveggja erlendu ferðamanna sem fluttir voru á slysadeild Landspítalans eftir umferðarslys austan við Hvolsvöll í gær er enn á gjörgæslu. Ekki er mikið vitað um ástand hans að svo stöddu.

Hinn ferðamaðurinn er kominn af gjörgæsludeild en hvílir enn á spítala. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti fólkið á spítalann í gær eftir slysið, sem varð til þess að Suðurlandsvegi var lokað um tíma.

Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, sagði í gær að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann valt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×