Skemmdarverk í Breiðholti: "Klesst´ann“ þegar þeir komu úr varðhaldi Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 4. maí 2015 16:51 Thelma Lind var heima hjá sér þegar skemmdarverkin áttu stað. Henni þykir miður að þurfa að bera kostnaðinn af tjóninu sjálf. Vísir/Thelma „
Það að heyra að þeir séu alveg lausir við eftirsjá er eiginlega verst,“ segir Thelma Lind Smáradóttir en hún er ein þeirra sem lenti í því að fjórir menn unnu skemmdarverk á bíl hennar í Breiðholti síðastliðna helgi. „Ég spurði lögregluna hvort þeir hefðu séð að sér og hann sagði að sá elsti hefði virst sjá mest eftir þessu, hann játaði allt strax og svona. Hinir voru gjörsamlega samviskulausir. Voru bara að kless'ann á hvor öðrum þegar þeir komu úr varðhaldi.“ Um tuttugu bílar urðu fyrir barðinu á mönnunum um helgina. Mennirnir eru frá aldrinum 16 til 22 ára og virðist engin ástæða liggja að baki skemmdarverkunum. Þeir voru handteknir og vistaðir í fangageymslu.Tjónið Thelmu að greiða Málið versnaði til muna þegar Thelma áttaði sig á því að kostnaður vegna skemmdarverkanna myndi falla á hana sjálfa. „Lögreglan segir við mig að þetta sé í raun og veru mitt tjón,“ segir hún. Þrátt fyrir að vitað sé hverjir mennirnir voru sem unnu tjónið á bíl hennar, þeir hafi verið handteknir og að hún hafi lagt fram kæru í morgun mun hún að öllum líkindum þurfa að bera kostnað af skemmdarverkunum sjálf.Sjá einnig: Brutu rúður í bílum í Breiðholti „Ég spurði lögregluna hvernig þetta mætti vera,“ segir Thelma Lind og fékk hún þá þær útskýringar að mennirnir væru eignalausir og því ekki borgunarmenn fyrir tjóninu. „Það náttúrulega sökkar að tjónþolar þurfi að bera kostnað af þessu vegna þess að þeir eru ekki borgunarmenn fyrir þessu, það sendir bara þau skilaboð út í samfélagið að ef þú átt ekkert þarftu ekki að bera neina virðingu fyrir eignum annarra,“ segir Thelma Lind ósátt.„Þetta er hin blákalda staðreynd“ Staðan sem upp er komin er í raun ekki óalgeng. Til þess að tjónþoli fái greiddar skaðabætur úr hendi þess sem var valdur af tjóninu þarf fyrst að kæra einstaklinginn og leggja fram bótakröfu hjá lögreglu. Síðan þarf að liggja fyrir dómur um skaðabótaskyldu tjónvalds. Tjónþoli getur gert kröfu á grundvelli dómsins en ef sá sem olli tjóninu á enga fjármuni er fjárnám dæmt árangurslaust og tjónþoli situr eftir með tjón sitt. Kröfunni er hægt að halda á lífi, hún rennur úr gildi eða fyrnist eftir fjögur ár, en það kostar bæði tíma og peninga. „Þetta er hin blákalda staðreynd,“ segir Sumarliði Guðbjörnsson, sérfræðingur í ökutækjatjónum hjá Sjóvá. Hann segir mikið af fólki sitja uppi með tjón á eignum sínum vegna þess að tjónvaldar eru ekki borgunarmenn fyrir tjóninu. Hann bendir hins vegar á að kaskótrygging nái yfir skemmdarverk af því tagi sem Thelma Lind lenti í. Að auki greiða tryggingarnar rúðutjón hvort sem um kaskótryggðan aðila er að ræða eða ekki. Thelma Lind var ekki kaskótryggð en bíll hennar er 13 ára gamall. Hún er tryggð hjá Sjóvá og fær því rúðuna bætta upp að ákveðnu marki en hvað annað tjón vegna skemmdarverkanna varðar stendur hún uppi með sjálf. „Það eina sem ég gerði „rangt“ var að vera heima hjá mér á föstudagskvöldi,“ segir hún ósátt.Uppfært 4. maí kl. 17.59: Aðspurð segist Thelma hafa talið að forráðamenn drengsins sem er undir 18 ára aldri séu ábyrgir fyrir tjóninu. Hana grunar þó að aðstæður drengsins séu með þeim hætti að tjónið fáist ekki bætt með þeim leiðum. Þetta byggir hún á upplýsingum frá lögreglu.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira