Gyrðir Elíasson hlaut Íslensku þýðingaverðlaunin Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 23. apríl 2015 17:05 Gyrðir Elíasson hefur áður hlotið verðlaunin. Vísir/Anton Brink
Gyrðir Elíasson hlaut í dag Íslensku þýðingaverðlaunin fyrir Listin að vera einn, þýðingu á ljóðum japanska skáldsins Shuntaro Tanikawa. Verðlaunin afhent í ellefta sinn við hátíðlega athöfn á Gljúfrasteini. Forseti Íslands afhenti verðlaunin. Gyrðir hefur áður hlotið Íslensku þýðingaverðlaunin en þau fékk hann árið 2012 fyrir annað ljóðasafn, Tunglið braust inn í húsið. „Gyrðir Elíasson er íslenskum lesendum að góðu kunnur, bæði sem skáld og þýðandi, og hefur hlotið margar aðrar viðurkenningar og verðlaun, m.a. Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2000 og Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2011. Ljóðskáldið Shuntaro Tanikawa (f. 1931) er einnig margverðlaunaður, talinn til merkustu skálda Japan og helstu stórskálda heimsins og því er mikill fengur að því að fá safn af ljóðum hans í vandaðri íslenskri þýðingu,“ segir í tilkynningu frá Bandalagi þýðenda og túlka. Dómnefnd Íslensku þýðingaverðlaunanna skipuðu Árni Matthíasson, María Rán Guðjónsdóttir og Tinna Ásgeirsdóttir og hafði hún þetta að segja um Listina að vera einn: „Með þýðingu sinni á ljóðum Shuntaro Tanikawa kynnir Gyrðir Elíasson okkur eitt helsta núlifandi skáld Japana. Tanikawa er meðal annars þekktur fyrir glímu sína við tungumálið og það hvernig hann teygir það og togar, en þó þykir texti hans tær og virðist áreynslulaus líkt og skilar sér í þýðingum Gyrðis á ljóðunum. Aðrir tilnefndir þýðendur voru Herdís Hreiðarsdóttir fyrir Út í vitann eftir Virginia Woolf, Hermann Stefánsson fyrir Uppfinning Morels eftir Adolfo Bioy Casares, Jón St. Kristjánsson fyrir Náðarstund eftir Hannah Kent og Silja Aðalsteinsdóttir fyrir Lífið að leysa eftir Alice Munro. Bandalag þýðenda og túlka þakkar dómnefnd fyrir óeigingjarnt og gott starf og ofangreindum úrvalsþýðendum fyrir afbragðsgóðar þýðingar. Einnig óskum við Gyrði Elíassyni innilega til hamingju með Íslensku þýðingaverðlaunin 2015.“
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir „Hrokinn í þessum fjármálaráðherra er með þvílíkum ólíkindum“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Sjá meira