Fiskalistaverk fjarlægð af Facebook eftir ásakanir um stuld Bjarki Ármannsson skrifar 28. apríl 2015 20:30 Grafískar teikningar Theodóru Mjallar virðast byggðar á náttúrulífsteikningum Jóns Baldurs Hliðberg. Vísir
Lokað hefur verið fyrir Facebook-síðu hönnunarverkefnisins Fagur fiskur í sjó eftir ábendingar um að myndirnar virðist að miklu leyti byggðar á teikningum náttúrulífsteiknarans Jóns Baldurs Hlíðberg. Um er að ræða grafískar myndir af íslenskum fiskum eftir hönnuðinn Theodóru Mjöll Skúladóttur Jack. Meðal annars benti einn notandi Facebook á líkindin milli verks Jóns Baldurs og myndaraðar Theodóru á Facebook-síðu verslunarinnar Epal. Epal hafði áður birt frétt á vef sínum um myndaröðina Fagur fiskur í sjó og spurt hvort áhugi væri fyrir því að myndirnar færu í sölu þar. Sú frétt hefur nú verið fjarlægð af vef Epals en myndirnar voru aldrei teknar í sölu. Theodóra Mjöll vildi ekki tjá sig um málið þegar fréttastofa leitaði eftir því.Samanburður á verkum Theodóru og teikningum Jóns Baldurs.Myndir/Af FacebookMyndir margoft notaðar án leyfis Aðspurður segist Jón Baldur þekkja myndirnar allar sem sínar eigin, þó búið sé að eiga við þær í tölvu. Flestar þeirra sé að finna í bókum sem komu út fyrir um þrjátíu árum síðan. Hann segist hafa sent Theodóru skilaboð vegna málsins á Facebook í gær, áður en síðan var tekin niður, en ekki fengið svar. „Ég er svona að velta fyrir mér næstu skrefum,“ segir hann. „Það þýðir ekkert að standa í stríðsrekstri gagnvart vafalaust ágætu fólki sem verður á. Ég vona bara að hún hafi samband og við lögum þetta í sátt og samlyndi.“ Jón Baldur segist mjög oft verða var við það að myndir hans séu notaðar án leyfis, jafnvel í hundruð tilfellum á ári. Í langflestum tilfellum hafi þó sættir náðst fljótt og hann hafi aðeins einu sinni þurft að hafa samband við lögmann. „Menn slysast stundum til að gera meira en þeir mega,“ segir Jón Baldur. „Það er mjög oft sem ég lendi í brotum sem eru bara skiljanlegur misskilningur eða slys. En ég hef lent í því núna í tvígang að myndir sem ég er höfundur að hafa verið fjölfaldaðar, lítið breyttar, og boðnar til sölu.“
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir „Hrokinn í þessum fjármálaráðherra er með þvílíkum ólíkindum“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Sjá meira