„Þetta er pínlegt mál frá A - Ö“ Birgir Olgeirsson skrifar 29. apríl 2015 13:18 Skátar taka þátt í hátíðarhöldunum á 17. júní síðastliðnum. Vísir/Daníel „
Það urðu mistök af okkar hálfu,“ segir Hermann Sigurðsson, framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta, en Skátarnir sendu óvart reikning á fjölda fyrirtækja sem var merktur sem styrkur. Hreyfingin sendir árlega út valgreiðsluseðil á valin fyrirtæki en í ár fór hann út sem reikningur. „Það voru gerð mistök hjá okkur þegar við vorum að færa. Þetta fór óvart sem reikningur en ekki valgreiðslukrafa. Við höfum fellt þetta niður þegar fólk hringir og beðist afsökunar á þessu. Það urðu mistök af okkar hálfu. Það eru engin vextir á þessu eða neitt og við höfum fellt þetta niður þegar ábendingar berast,“ segir Hermann en Skátarnir er með lista yfir fyrirtæki sem fá valgreiðsluseðil árlega og fóru þessir reikningar því víða. „Þetta er pínlegt mál frá A - Ö.“ Spurður hvernig starfið hjá Skátunum lítur út í sumar svarar Hermann því að það verði ansi blómlegt. Á hann von á því að skátahreyfingin starfræki 10 útilífsskóla í sumar og þá er nánast uppbókað í sumarbúðir skáta á Úlfljótsvatni. Þá verður einnig haldið stórt skátamót og þá ráðgera Skátarnir að senda 80 skáta á 36 þúsund manna Heimsmót Skáta í Japan. Þátttakendur koma frá 160 þjóðlöndum og munu búa saman í tíu daga. „Þetta er mjög skemmtileg áskorun, það verður 35 stiga hiti og 90 prósenta raki. Þetta verður geggjað.“
Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Innlent Fleiri fréttir Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Sjá meira