Þörf á aðhaldsaðgerðum í Hafnarfirði Samúel Karl Ólason skrifar 29. apríl 2015 21:30 Vísir/Stefán
Mikilvægt er að minnka útgjöld og greiða niður skuldir Hafnarfjarðarbæjar. Ársreikningur sveitarfélagsins, sem samþykktur var á fundi fyrr í kvöld, sýnir að fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er áfram erfið. Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir að rekstrarniðurstaða ársins hafi einungis verið jákvæð um 76 milljónir króna. Það er ekki í samræmi við aðlögunaráætlun sem gerð var með samningi við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. „Þetta getur haft þau áhrif að vextir hækki tímabundið þar sem veltufé frá rekstri nær ekki þeim viðmiðunum sem sett voru sem skilyrði í samningum um endurfjármögnun erlendra lána. Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 492 millj. kr. Samanborið við að fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu að upphæð 216 millj. kr.“ Áætlunin gerði ráð fyrir 619 milljóna króna rekstrarafgangi, eins og áður segir var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 76 milljónir. „Þetta frávik má m.a. rekja til hækkunar á lífeyrisskuldbindingu sveitarfélagsins, um 928 milljónir króna, sem er 515 milljónir umfram áætlun. Einnig hefur ráðgjafa- og lántökukostnaður vegna endurfjármögnunar, alls 156 milljónir króna, sem ekki var gert ráð fyrir í áætlunum, áhrif á niðurstöðuna,“ segir í tilkynningunni frá Hafnarfjarðarbæ. Þá þurfti sveitarfélagið að greiða ríkinu 15 prósenta fjármagnstekjuskatt vegna niðurstöðu dóms Hæstaréttar. Fjárhagsáætlunin gerði ráð fyrir tíu prósenta fjármagnstekjuskatt. Þar að auki þurfti að borga vexti vegna sölu á eignarhluta í HS Orku hf. á árinu 2008, samtals 333 milljónir króna.Tekjur umfram áætlun Alls námu tekjur Hafnarfjarðarbæjar 19.648 milljónum króna og er það 418 milljónum umfram áætlun. Laun og launatengd gjöld eru stærsti útgjaldaliður sveitarfélagsins og námu 9.985 milljónum króna sem er 442 milljónum krónum hærri en áætlun gerði ráð fyrir. Annar kostnaður var 7.163 milljónir sem er 230 milljónum króna umfram áætlun. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og óreglulega liði nam 1.634 milljónum króna. Fjármagnsliðir námu 1.226 milljónum króna sem er 67 milljónum umfram áætlun. Veltufé frá rekstri nam um 1.593 milljónum króna sem er 478 milljónum lægra en áætlun gerði ráð fyrir. „Rekstur málaflokka gekk vel og var í takt við áætlun. Stjórnendur stofnana eiga hrós skilið fyrir hvernig til hefur tekist við að halda fjárhagsáætlunum. Stærsti málaflokkurinn er fræðslu- og uppeldismál en til hans var varið um 8.748 milljónum króna. Til félagsþjónustu var varið um 2.637 milljónum króna og til æskulýðs- og íþróttamála var varið um 1.599 milljónum króna. Heildareignir í lok árs námu samtals 48.198 milljónum króna og hafa þær lækkað um 285 milljónir milli ára og heildarskuldir og skuldbindingar námu samtals 39.766 milljónum króna.“Veltufjárhlutfall óásættanlegt Endurskoðendur reikninga bæjarins vöktu sérstaklega athygli á veltufjárhlutfalli og skuldastöðu sveitarfélagsins. „Neikvæð rekstrarniðurstaða A-hluta bæjarsjóðs upp á 492 milljónir króna og veltufjárhlutfall 0,23% er óásættanlegt. Einnig eru fjármagnsgjöld verulega íþyngjandi en þau nema 6,2% af tekjum sveitarfélagsins, eða um 1.2 milljarði króna, sem er afar hátt hlutfall.“ Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar telur að góðar forsendur séu fyrir því að snúa fjármálum bæjarins til betri vegar verði rétt að málum staðið og tekið á hlutunum af ábyrgð og festu. „Meðal annars er mikilvægt að styrkja stoðirnar, laða að fyrirtæki og íbúa til að auka umsvif og þar með tekjur bæjarins. Stærsta viðfangsefnið í stjórnun sveitarfélagsins á næstunni verður þó að ná betri tökum á útgjöldum og niðurgreiðslu skulda. Vonir eru bundnar við að rekstrarúttekt á stofnunum bæjarins og tillögur í kjölfar hennar muni hafa jákvæð áhrif á fjárhag Hafnarfjarðarbæjar til framtíðar. Mikilvægt er að skapa svigrúm til lækkunar á gjöldum og álögum sveitarfélagsins, viðhalda eða auka þjónustu og hefja uppbyggingu fyrir eigið fé til hagsbóta fyrir bæjarbúa alla.“
Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Fleiri fréttir Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Sjá meira