Slappleiki þriggja ára stúlku á Selfossi reyndist vera hvítblæði sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 10. apríl 2015 14:12 "Hún er mjög hress og sterk stelpa og hefur alltaf verið.“
Tanja Kolbrún Fannarsdóttir er þriggja ára stúlka sem í síðasta mánuði greindist með hvítblæði. Ástvinir Tönju Kolbrúnar hafa hafið söfnun henni til stuðnings en fram undan er tveggja og hálfs árs lyfjameðferð með tilheyrandi kostnaði. Vísir hafði samband við Fannar Geir Ólafsson, föður Tönju, sem féllst á að segja frá veikindum dóttur sinnar sem greindist með hvítblæði fyrir þremur vikum síðan. Hún hafði þá í nokkra daga verið slöpp og fóru foreldrar hennar því með hana á heilsugæsluna á Selfossi. Vakthafandi læknir tók ákvörðun um að senda Tönju Kolbrúnu í blóðprufu sem vakti grun um að um hvítblæði væri að ræða.Erfiðir tímar fram undan „Við fengum símtal þar sem okkur var sagt að fara til Reykjavíkur á Barnaspítalann. Hún fór þar í alls kyns rannsóknir og blóðprufur og þá fáum við hugmyndir af því hvað þetta gæti verið. Degi síðar var okkur sagt að það væru um 95-100 prósent líkur á að hún væri með það sem kallast ALL barnahvítblæði,“ segir Fannar Geir Ólafsson, faðir Tönju Kolbrúnar, í samtali við Vísi. Hann segir afskaplega erfitt að hafa fengið þessar fregnir. Þeim verði þó tekið með jákvæðnina að vopni, enda hafi fjölskyldan fundið fyrir miklum stuðningi allt í kring. „Þetta eru auðvitað mikil viðbrigði fyrir hana, þrátt fyrir að hún geri sér ekki alveg grein fyrir þessu, enda bara þriggja ára. En hún er mjög hress og sterk stelpa og hefur alltaf verið. Við vitum að þetta verður erfitt, hún má ekki fara í leikskóla og getur ekki verið mikið meðal almennings, því ónæmiskerfið höndlar það ekki.“Orðlaus yfir stuðningnum Átta aðilar tengdir Tönju Kolbrúnu hófu söfnunina í vikubyrjun. Fannar segist þeim afar þakklátur, bæði fyrir stuðninginn og alla aðstoðina. „Ég átti bara ekki orð þegar mér var sagt frá þessu. Maður veit varla hvernig maður á að haga sér þegar svona kemur upp. Þau vilja láta gott af sér leiða og ótrúlega fallegt að þau skuli gera þetta fyrir litlu stelpuna okkar,“ segir Fannar. „Barnaspítali hringsins og styrktarfélag krabbameinssjúkra barna hafa einnig staðið mjög þétt við bakið á okkur. Við erum þeim einnig afar þakklát,“ segir Fannar.Haldnar verða opnar æfingar í líkamsræktarstöðinni Kraftbrennslunni á Selfossi hinn 2. maí næstkomandi. Aðgangseyrir eru 1.500 krónur og rennur upphæð sú óskipt til Tönju og fjölskyldu. Frjáls framlög eru einnig vel þegin en styrktarreikningurinn er eftirfarandi:Reikningur: 0325 - 13 - 110106Kennitala: 210911-2190
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir „Ég er náttúrlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Sjá meira