Garnaveiki staðfest á bæ í Skútustaðahreppi Birgir Olgeirsson skrifar 11. mars 2015 10:38 Einkenni garnaveiki koma fram um það bil einu til tveimur árum eftir smit og og lýsa sér helst í vanþrifum og skitu, og geta í sumum tilvikum dregið kindur til dauða. Vísir/Vilhelm
Nýverið var garnaveiki staðfest á bæ í Skútustaðahreppi sem er í Skjálfandahólfi að því er fram kemur í tilkynningu frá Matvælastofnuna. Þar segir að bóndinn á bænum greindi einkenni í tveimur kindum, kallaði til dýralækni og í kjölfarið var sent sýni á keldur og var veikin staðfest í liðinni viku. Síðast greindist garnaveiki í Skútustaðahreppi árið 2013. Garnaveiki er tilkynningaskyldur sjúkdómur af völdum bakteríunnar Mycobacterium paratuberculosis sem er náskyld berklabakteríunni. Smitið berst með saur en bakterían leggst einkum á slímhúð mjógirnis þar sem hún veldur langvinnum bólgum. Einkenni koma fram um það bil einu til tveimur árum eftir smit og og lýsa sér helst í vanþrifum og skitu, og geta í sumum tilvikum dregið kindur til dauða. Þekkt er að heilbrigðir smitberar geti viðhaldið sjúkdómnum á sauðfjárbúum. Engin lækning er þekkt við garnaveiki. Þó er hægt að bólusetja gegn sjúkdómnum en skylt er að bólusetja fé á þeim svæðum landsins þar sem hún er landlæg. Einnig er óheimilt að flytja sauðfé, geitur eða nautgripi til lífs frá garnaveikibæjum í tíu ár frá síðustu greiningu sjúkdómsins á viðkomandi bæ. Mikilvægt er að huga að því að smit getur borist með landbúnaðartækjum, heyi, áburði o.fl. en flutningur á öllu slíku frá garnaveikibæjum er einnig óheimill.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira