Upplýsingastjórinn tók eigin hugmynd sem dæmi í kynningu íbúakosningar Aðalsteinn Kjartansson skrifar 2. mars 2015 15:52 Kosið var um hugmynd upplýsingastjóra Reykjavíkurborgar en hugmyndin var notuð sem dæmi í kynningu á kosningunni á Facebook-síðu borgarinnar, sem heyrir undir upplýsingastjórann.
Hugmynd Bjarna Brynjólfssonar, upplýsingastjóra Reykjavíkurborgar, um að leggja göngustíg meðfram KR-vellinum var tekin sem dæmi um hugmyndir sem Vesturbæingar gátu kosið um í íbúakosningu á Facebook-síðu borgarinnar. Bjarni er einn nokkurra stjórnenda síðunnar en hún heyrir undir hans svið. Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar hefur verið falið að skoða athugasemdir sem fulltrúar Sjálfstæðisflokks í stjórnkerfis- og lýðræðisráði borgarinnar, Hildur Sverrisdóttir og Áslaug María Friðriksdóttir, gerðu á fundi ráðsins í dag. Í bókun sem þær lögðu fram kemur fram að óásættanlegt sé að upplýsingafulltrúinn hampi eigin hugmynd á síðu borgarinnar. Tillaga ráðsins um að vísa athugasemdunum til innri endurskoðunar var samþykkt samróma. „Ekki verður annað sagt en að hér sé um spillingu að ræða sem er nauðsynlegt að grípa til aðgerða gegn,“ segir í bókuninni. Kosningin var bindandi og snerist um 300 milljóna framkvæmdir í hverfum borgarinnar. „Málið er því vægast sagt vafasamt og kallað er eftir viðbrögðum meirihlutans í Reykjavík sem ber að sjálfsögðu pólitíska ábyrgð á þeim æðstu embættismönnum sem tala í nafni Reykjavíkur,“ segja þær. Í bókuninni var vísað í Facebook-færslu Bjarna á sinni eigin síðu frá 18. febrúar 2015 en þar sagði hann: „Endilega kjósið hugmyndina mína um göngustíg meðfram KR vellinum.“ Tveimur dögum síðar birtist svo færsla á síðu borgarinnar þar sem sagði: „Hér gæti komið gangstétt meðfram KR vellinum ef íbúar í Vesturbæ kjósa þá hugmynd sem er á lista yfir verkefni í Vesturbænum.“
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira