Riðuveiki greindist á búi í Skagafirði Atli Ísleifsson skrifar 3. mars 2015 15:39 Bóndinn í Valagerði í Skagafirði fékk grun um riðuveiki í þremur ám og hafði samband við dýralækni. Vísir/Vilhelm
Riðuveiki greindist í síðustu viku á búi í Skagafirði. Aðeins er um mánuður síðan riða greindist á Vatnsnesi, en Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða. Í frétt á vef Matvælastofnunar segir að fyrir skömmu hafi bóndinn í Valagerði í Skagafirði fengið grun um riðuveiki í þremur ám og hafði samband við dýralækni. „Kindunum var lógað og sýni send til Tilraunastöðvar Háskóla Íslands á Keldum, sem staðfesti nokkrum dögum síðar að um hefðbundna riðuveiki væri að ræða. Búið er í Skagahólfi en þar hefur riðuveiki komið upp á átta búum á undanförnum 15 árum en á þessu búi hefur veikin ekki greinst áður. Fyrir aðeins um mánuði síðan greindist riðuveiki á búi á Vatnsnesi en þá hafði hefðbundin riða ekki greinst á landinu síðan árið 2010. Unnið er að gerð samnings um niðurskurð á því búi og í kjölfarið verður fénu lógað. Þessi tvö tilfelli eru ótengd enda sitt í hvoru varnarhólfinu. Strangar reglur gilda um flutning fjár milli varnarhólfa og annars sem borið getur smit. Þessi tvö nýju tilfelli sýna að baráttunni við riðuveikina er langt í frá lokið og eru bændur hvattir til að vera á varðbergi gagnvart einkennum og hafa samband við dýralækni fái þeir grun um veikina. Einkenni riðu eru breytileg, um getur verið að ræða kláða, taugaveiklun og óeðlilegar hreyfingar. Í sumum tilvikum koma aðeins sum þessara einkenna fram en í öðrum öll. Héraðsdýralæknir Matvælastofnunar vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga og úttektar á búinu í Skagafirði til að meta umfang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreinsun. Allt frá því ákveðið var að hefja átak gegn riðuveiki, fyrir rúmlega 30 árum síðan, með það að markmiði að útrýma veikinni hefur ráðherra ávallt fyrirskipað niðurskurð þegar riða hefur greinst og aðar aðgerðir ekki komið til álita. Á nýjunda áratug síðustu aldar var skorið niður á tugum búa á hverju ári en mjög hefur dregið úr tíðni veikinnar og á undanförnum árum hefur hún aðeins greinst á stöku búum,“ segir i frétt Matvælastofnunar.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Erlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Mundaði stólinn og lamdi gesti Innlent Fleiri fréttir Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Sjá meira