Segir óundirbúnar fyrirspurnir „hálftíma hálfvitanna“ Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 3. mars 2015 15:58 Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði suma tala um óundirbúnar fyrirspurnir á Alþingi sem "hálftíma hálfvitanna“.
Á borgarstjórnarfundi í dag lagði Hildur Sverrisdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins fram tillögu þess efnis að taka skuli upp óundirbúnar fyrirspurnir til borgarstjóra líkt og tíðkast á Alþingi í óundirbúnum fyrirspurnartíma ráðherra. Hildur sagði á fundinum að það væri gríðarlega mikilvægt fyrir minnihlutann í borgarstjórn að hann hafi færi á sinna eftirlitshlutverki sínu eins og kostur er. „Það er mikilvægt að minnihlutinn geti treyst á ramma þar sem hægt er að hafa beinan aðgang að æðsta embættismanni borgarinnar með spurningar sem borgarstjóri verði að svara. Slíkt myndi bæta samtal á milli meiri- og minnihluta á skýran og gagnsæjan hátt og með því væru borgarstjórnarfundirnir skilvirkari í því hlutverki sínu sem opinber málstofa gagnvart almenningi og fjölmiðlum,“ segir Hildur. Í umræðum um tillöguna talaði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri um að talað væri um þennan dagskrárlið á Alþingi sem „hálftíma hálfvitanna“ og sagði að það skipti máli hvernig svona tími væri nýttur. Hann tók þó vel í tillöguna og sagði að það mætti gjarnan skoða að gera tímabundna prufu á hvernig svona dagskrárliður gæti gengið í borgarstjórn. Hildur svaraði því til að hún harmaði að með þessum orðum borgarstjóra væri verið að ýja að því að minnihlutinn þyrfti að passa sig hvernig þeir myndu haga orðum sínum í þessum dagskrárlið ella myndi meirihlutinn hætta að bjóða upp á þennan dagskrárlið; það væri þvert gegn tilgangi tillögunnar um að minnihlutinn hefði aðgang að dagskrárlið þar sem hægt væri að spyrja borgarstjóra að hverju því sem hann telur brýnt hverju sinni, án þess að meirihlutinn hafi yfir því það forráð að geta stoppað það af af hentugleik. Tillögunni var vísað til forsætinefndar til umsagnar.Tillaga Hildar:Lagt er til að fyrsti dagskrárliður hvers borgarstjórnarfundar verði óundirbúnar fyrirspurnir borgarstjóra. Forsætisnefnd verði falið að móta tilhögun með hliðsjón af þingskaparlögum um óundirbúnar fyrirspurnir á Alþingi, að breyttu breytanda. Bókun Sjálfstæðisflokksins:Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna því að samþykkt hafi verið að vísa tillögunni til forsætisnefndar til nánari úrvinnslu. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins harma þó að meirihlutinn hafi ekki treyst sér til að samþykkja tillöguna eins og hún lá skýr fyrir um mikilvægi þess að dagskrárliður um óundirbúnar fyrirspurnir borgarstjóra verði á hverjum einasta borgarstjórnarfundi, í byrjun dagskrár og ekki til einhverrar reynslu til skamms tíma eins og var ýjað að í umræðunni. Allir slíkir fyrirvarar gera lítið úr þeim ramma sem minnihlutinn er hér að biðja um til að geta treyst á að geta gætt að eftirlitshlutverki sínu, án þess að það sé á nokkurn hátt á forræði meirihlutans eins og nú er. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska þess að í vinnu forsætisnefndar við útfærslu tillögunnar verði sá mikilvægi þáttur tillögunnar hafður að leiðarljósi.
Tengdar fréttir Vill óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Hildur Sverrisdóttir, borgarfulltrúi, mun leggja fram tillögu um óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn á borgarstjórnarfundi í dag. 3. mars 2015 12:00 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira
Vill óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Hildur Sverrisdóttir, borgarfulltrúi, mun leggja fram tillögu um óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn á borgarstjórnarfundi í dag. 3. mars 2015 12:00