Þjónusta við fatlaða verður gerð einstaklingsbundnari Heimir Már Pétursson skrifar 6. mars 2015 19:30
Neyðarstjórn Strætó BS leggur til ýmsar breytingar á rekstri fyrirtækisins á þjónustu við fatlaða. Borgarstjóri segir ljóst að ýmis mistök hafi verið gerð hjá fyrirtækinu. Í skýrslu neyðarstjórnarinnar er meðal annars lagt til að þjónusta við ákveðinn hóp fólks verði persónulegri. Sveitarfélögin fimm sem eiga Strætó BS skipuðu neyðarstjórn yfir Strætó fyrir um mánuði undir stjórn Stefáns Eiríkssonar, eftir röð mistaka við þjónustu við fatlaða. Stefán Eiríksson skilaði skýrslunni til eigendahópsins seinnipartinn í gær og í dag voru tillögur stjórnarinnar samþykktar.Hverjar eru hennar helstu niðurstöður?„Hún er að leggja til mjög margt. Bæði þarf að auka þjálfun bílstjóra, það þarf að laga verkferla og í raun erum við að hverfa aftur til meiri einstaklingsmiðaðrar nálgunar. Þar sem fastar ferðir verða meira í föstum skorðum með sömu bílstjóra og svo framvegis,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Þannig sé verið að læra af reynslunni. Það sé mikilvægt að kerfið bjóði upp á einstaklingsbundnari þjónustu fyrir þá sem á þurfi að halda.Það er ljóst að þarna voru gerð ýmis mistök, m.a. með stúlkuna sem skilin var eftir í bíl klukkustundum saman?„Já, það er sérstaklega fjallað um hennar mál í skýrslu neyðarstjórnarinnar. Það er tekið út og það er ljóst að það er margt sem klikkaði þar,“ segir borgarstjóri. Meðal annars að þjálfun bílstjóra fyrir þjónustu við fatlaða hafi ekki verið nægjanleg. Eitt af því sem gert verði að tillögu neyðarstjórnarinnar sé að auka þjálfun bílstjóranna. „Það verður sett í hendur þeirra sem halda utan um ferðaþjónustu fatlaðra að tryggja aukna þjálfun bílstjóra. Það er sérstakt framkvæmdaráð undir forystu Þorkels Sigurlaugssonar sem fer núna í það að innleiða tillögur neyðarstjórnarinnar,“ segir Dagur. Þjónustan geti orðið eitthvað dýrari við þetta en það sé líka dýrt þegar mistök séu gerð við þjónustuna sem eigi vonandi eftir að komast í fastar skorður með tillögum neyðarstjórnarinnar. „Það er auðvitað erfitt að koma í veg fyrir mannleg mistök. Af því að við erum jú öll mannleg. En það sem lítur að skipulagi, það sem lítur að verkferlum, það sem lítur að því að koma betur til móts við fólk sem nýtir sér þjónustuna; það á að færast til betri vegar,“ segir Dagur B. Eggertsson.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira