Taka lán upp á hálfan milljarð til að kaupa leikskóla Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. febrúar 2015 16:40 Leikskólinn Grænuvellir er á Húsavík. Vísir/GVA
Sveitarfélagið Norðurþing hyggst taka 445 milljóna króna lán hjá Lánasjóði sveitarfélaganna til að festa kaup á húsnæði leikskólans Grænuvellir á Húsavík. Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í seinustu viku en RÚV greindi fyrst frá málinu. Óli Halldórsson, formaður bæjarráðs Norðurþings, segir að lántakan hafi verið skárri kosturinn af tveimur. Hinn kosturinn hafi verið að festa sveitarfélagið í óhagstæðum leigusamningi við fasteignafélagið Fasteign. „Við mátum stöðuna þannig með tilliti til greiðslubyrði, ábyrgðar á fasteigninni, viðhalds og annars að þetta væri okkur hagstæðari kostur þó að hann væri vissulega afarkostur,“ segir Óli. Hann segir að lánið, sem er til 20 ára, hafi sáralítil áhrif á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins, nema þá vonandi til batnaðar. „Þetta hefur til að mynda ekki áhrif á skuldastöðu sveitarfélagsins því leigusamningurinn er bókfærður sem skuld inn í ársreikning. Við skiptum honum því í rauninni bara út fyrir lánið sem er upp á nánast sömu upphæð.“ Greiðslubyrðin verður því svipuð, og ef til vill eitthvað lægri að sögn Óla, en á móti kemur að sveitarfélagið eignast húsið. Það var byggt árið 1978 en var tekið í gegn af fasteignafélaginu Fasteign fyrir 10 árum. Brunamótamat þess samkvæmt fasteignaskrá er rúmar 300 milljónir króna. Óli segir að kaupverðið sé vissulega hátt en það sé lítið hægt að tengja verðið við markaðsvirði hússins. „Það er í raun verið að taka yfir leigusamning sem er óuppsegjanlegur og ekki hægt að komast út úr. Hann er því framreiknaður og keyptur upp.“
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Fleiri fréttir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Sjá meira