Íslendingar búnir að fá nóg og flýja ótíðina unnvörpum Jakob Bjarnar skrifar 26. febrúar 2015 15:28 Skarphéðinn segir greinilegt að menn vilji bara komast í burtu. Í sólina. Strax. visir/GVA/Getty/Stefán
Vísir hefur haft veður af því að Íslendingar séu óvenju ákafir í að kaupa sér sólarlandaferðir um þessar mundir. Þegar blaðamaður hringdi í Úrval Útsýn ætlaði hann aldrei að ná í gegn, allar línur voru uppteknar. Það náðist þó loks í Skarphéðinn Berg, forstjóra og hann sagði að salan gengi alveg gríðarlega vel núna. „Við erum að sjá menn kaupa sér sólarlandaferð með stysta mögulega fyrirvara. Þeir vilja fara bara strax á morgun. Það er alveg rétt. Það er ekki mikið framboð, en það sem er til það selst vel,“ segir Skarphéðinn. Íslendingar eru sem sagt búnir að fá sig fullsadda af óveðri sem hefur dunið á þeim í allan vetur. „Já, það er algjörlega greinilegt að menn vilja komast í betra veðurfar. Og það er milt og þægilegt á til dæmis Kanaríeyjaklasanum, allt annað en hérna. Það er engin spurning, það hefur verið mjög mikið að gera hér inni á gólfi í dag, þannig að það er greinilegt að menn eru að hugsa um ferðir í mars og um páskana. Selst eins og heitar lummur.“ Skarphéðinn segir greinilegt að menn vilji bara komast í burtu. Í sólina. Strax. „Það er eftirtektarvert hvað menn eru að kaupa með stuttum fyrirvara. Og það eru þeir sem eru búnir að fá alveg uppí kok.“ Kreppan setti strik í reikninginn hjá ferðaskrifstofum eins og víðar, en Skarphéðinn segir að sala á ferðum til útlanda sé ekki að ná þeim hæðum og var misserin fyrir hrunið 2008. „En, undanfarin tvö til þrjú ár hefur verið jafn vöxtur í þessum bransa milli ára. Þannig að það er greinilegt að fólk er í auknara mæli farið að líta til þess að komast í sólina yfir sumarið. Tímabilið hefur líka verið að lengjast. Fólk er að fara í hefðbundnar sólarlandaferðir sem teygja sig inn í september og jafnvel október.“
Mest lesið „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Erlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Mundaði stólinn og lamdi gesti Innlent Fleiri fréttir Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Sjá meira