Upplýsingastjóri Reykjavíkur reifst við Björn Jón í nafni borgarinnar Aðalsteinn Kjartansson skrifar 26. febrúar 2015 15:42 Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar, hefur beðist afsökunar á því að hafa gert Birni Jóni Bragasyni upp skoðanir.
Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar, hefur beðist afsökunar á því að hafa gert Birni Jóni Bragasyni, fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í hverfisráði Laugardals, upp skoðanir í umræðuþræði á Facebook-síðu borgarinnar í nafni Reykjavíkur. Sagður ganga erinda D-lista „Ég biðst afsökunar á því að í færslunum hér að ofan eru Birni Jóni gerðar upp skoðanir sem hann viðraði ekki í sínum færslum en auk þess á þeim ummælum að hann gangi erinda D-listans í færslum sínum,“ segir hann í athugasemdum undir eigin nafni á þræðinum. Fyrr í sama þræði sagði stjórnandi síðu Reykjavíkur að hafa þyrfti í huga að Björn Jón gengi erinda Sjálfstæðisflokksins í umræðunni en þar hafði hann gagnrýnt forgangsröðun borgarinnar. „Gatnakerfið er hrunið vegna viðhaldsleysis vinstrimanna síðustu ára sem hafa verið uppteknir við að eyða peningum almennings í gæluverkefni,“ skrifaði hann. Þessu svaraði Reykjavíkurborg á eftirfarandi hátt: „Þetta er ekki rétt hjá Birni Jóni Bragasyni sem gengur hér pólitískra erinda D-listans á síðunni. Hann er maðurinn sem vill engar sumargötur.“ Oddvitinn gerði athugasemdir Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borginni, og Áslaug Friðriksdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, gerðu athugasemdir við ummæli í nafni borgarinnar. „Það er skrýtið að sjá þessi samskipti hér af hálfu ,,Reykjavíkurborgar",“ skrifaði Halldór. „Tónninn í færslum Reykjavíkurborgar var óviðeigandi og þessari síðu ekki til sóma. Ég ritaði þessar færslur í flýti og biðst einlæglega afsökunar á því,“ skrifar Bjarni sjálfur í afsökunarbeiðninni.Biðst afsökunarBjarni segir í samtali við Vísi að einu athugasemdirnar sem gerðar voru við skrifin hafi komið á Facebook-síðunni. „Í rauninni sá ég bara að mér. Það var ég sem skrifaði þetta og mér er ljúft og skylt að biðjast afsökunar á því. Þarna var of langt gengið í nafni borgarinnar,“ segir hann.Hvað breyttist frá því að þú skrifaðir athugasemdirnar og þar til þú baðst afsökunar? „Ég fór bara aðeins að skoða þetta og auðvitað eru þessar kvartanir réttmætar. Þessi síða á ekki að vera pólitískt og Björn Jón hefur auðvitað frelsi til að setja hvaða skoðanir sem hann vill fram. Hefði ég viljað gera athugasemdir við það hefði ég getað gert það í eigin nafni.“Vilja svör um ummælin Í tilkynningu frá borgarráðsfulltrúum Sjálfstæðisflokksins kemur fram að þeir hafi óskað eftir svörum um hvernig staðið er að samskiptasíðunni. „Spurningin kemur til vegna þess að fulltrúi af lista Sjálfstæðisflokksins setti inn gagnrýni á síðuna sem var svarað með skætingi og honum jafnvel gerðar upp skoðanir í skjóli nafnleysis þrátt fyrir að hér sé um einhvers konar samskiptasíðu Reykjavíkurborgar að ræða,“ segir í tilkynninguni. Borgarráðsfulltrúarnir hafa óskað er eftir upplýsingum um í umboði hvers þessi vinna er unnin innan borgarinnar og hvaða starfsmenn borgarinnar sinna framkvæmd hennar. „Þar sem þetta er undir nafni Reykjavíkurborgar er þarna um opinbera rödd borgarinnar að ræða og þar af leiðandi undarleg ásýnd á það hvernig samtal borgaryfirvöld vilja hafa við íbúa sína,“ segir í tilkynninguni.Post by Reykjavíkurborg.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Fleiri fréttir Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í fyrsta sinn frá kosningum Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Sjá meira