Hjón dæmd fyrir að fjarlægja innréttingar af heimili sem þau voru að missa Birgir Olgeirsson skrifar 10. febrúar 2015 17:00 Maðurinn lýsti því fyrir dómi að Íslandsbanki hafi viljað breyta láni sem hvíldi á húsinu og það hafi stefnt í að hann og eiginkona hans myndu missa það. Myndin tengist ekki fréttinni. Vísir/Getty
Hjón í Kópavogi voru nýverið dæmd til fangelsisvistar fyrir skilasvik í Héraðsdómi Reykjaness. Hjónin voru ákærð fyrir skilasvik og peningaþvætti með því að hafa á tímabilinu 30. apríl til 14. febrúar árið 2011 í auðgunarskyni fjarlægt og látið fjarlægja og flutt á brott innanhússmuni úr fasteign sinni. Var hjónunum meðal annars gefið að sök að hafa selt hluta þessara muna og fyrir að hafa komið þeim fyrir inni á heimili dóttur mannsins. Á meðal þess sem þau fjarlægðu af heimilinu, samkvæmt ákæru, var innrétting, örbylgjuofn, blöndunartæki, vínkælir, borðplata, uppþvottavél, vaskur, salerni og salernisseta, handklæðaofn, rúlluhaldari, fataherbergisskápur, loftlýsing, instabus-stjórnkerfi, stigi, gler á svalahandrið, þjófvarnakerfi, hátalarar og magnarar. Var andvirði allra þeirra muna sem hjónin fjarlægðu af heimilinu metið á 13,8 milljónir króna. Maðurinn lýsti því fyrir dómi að Íslandsbanki hafi viljað breyta láni sem hvíldi á húsinu og það hafi stefnt í að hann og eiginkona hans myndu missa það. Maðurinn sagðist alfarið hafa séð um fjármál þeirra og hann alfarið einn ákveðið hvaða hlutir voru teknir úr húsinu og að kona hans hefði ekkert haft með það að gera. Svo fór að maðurinn var dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar en dómurinn ákvað að fresta skuli fullnustu tólf mánaða af refsingunni haldi hann skilorði í tvö ár. Konan var dæmd til tólf maána fangelsisvistar en dómurinn ákvað að refsingin skyldi niður falla haldi hún skilorði.
Mest lesið „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Innlent Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt Innlent Vara við því að færð spillist í kvöld Innlent Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Innlent Kynna breytta Reykjavíkurleið Innlent Nýr samfélagsmiðill bara fyrir íslenskt samfélag Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Innlent Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Innlent Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Erlent Fleiri fréttir Ný leið í leikskólamálum kynnt og von á snjókomu í kvöld Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Deila um vegslóða fyrir Hæstarétt Körfuboltastjarna íhugar framboð í Garðabæ Íhugar alvarlega formannsframboð hjá Vinstri grænum Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Komi öllum við hverjir kaupa vændi eða ætli að gera það Vara við því að færð spillist í kvöld Sundhöllinni lokað á meðan píparar ráða ráðum sínum Flykktust upp í turn til að sjá hvort sexan kæmist í loftið Kynna breytta Reykjavíkurleið Bein útsending: Ásgeir og Þórarinn mæta fyrir þingnefnd Dregur líklega úr svifryksmengun seint í dag Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Grunaður fíkniefnasali stöðvaður fyrir að tala í síma Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Nýr samfélagsmiðill bara fyrir íslenskt samfélag Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Gunnar, Guðfinnur og Sigríður á leið úr bæjarstjórn „Alveg hræðilegt ástand“ Aldraðir stíga fram og opna sig um „hræðilega stöðu“ Ekið á gangandi vegfaranda Suðurlandsvegi lokað vegna áreksturs tveggja bíla „Þetta er sorglegur dagur fyrir lýðræðið“ „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Brynja Dan vill leiða lista Framsóknar í Garðabæ Samþykktu heimild til að svipta flóttamenn vernd Sjá meira