Rukkað fyrir afnot af kirkjum í uppsveitum Árnessýslu Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 19. febrúar 2015 12:00 Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson, sóknarprestur í Hruna í Hrunamannahreppi. vísir/magnús hlynur
Sóknarnefndir fjögurra sóknarkirkna og tveggja bænahúsa í uppsveitum Árnessýslu og prestur kirknanna hafa ákveðið að hefja gjaldtöku vegna skírna og brúðkaupa í kirkjunum fyrir afnot af guðshúsunum. Kirkjurnar sem um ræðir eru Hrunakirkja, Stóra-Núpskirkja, Ólafsvallakirkja, Hrepphólakirkja og bænahúsinu á Stöng í Þjórsárdal og í Tungufelli. Ákveðið hefur verið að fólk sem býr ekki í sóknunum og vill skíra eða vera með brúðkaup í kirkjunum borgi fyrir afnot af þeim. Ekki er rukkað fyrir jarðafarir. Gjaldið er 3.000 krónur fyrir skírn og 10.000 krónur fyrir brúðkaup. Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson, prestur í Hruna er prestur allra þessara kirkna og bænahúsa. „Það er auðvitað heilmikil umsýsla, sem að fylgir afnotum af þessu kirkjum, t.d. þrif, rafmagn og stúss í kringum að sjá um að allt sé klárt og svo að ganga frá á eftir. Við köllum þetta viðmiðunargjald því að sannleikurinn er sá að margir, sem óska eftir því að fá afnot af þessum fallegu kirkjum að það spyr gjarnan hvað kostar þetta, hvað kostar þetta umstang okkar. Þá hefur ekkert verið nefnt, bara bent á kirkjubaukinn,“ segir séra Óskar Hafsteinn. En hvað ætlar hann að gera ef fólk neitar að borga ? „Þá auðvitað ætlum við ekki að fara í slag við fólk um þetta. Þetta eru held ég afskaplega vinsamleg tilmæli og vinsamleg niðurstaða hjá okkur.“ Þegar Óskar Hafsteinn var spurður hvort hann héldi að hann væri á hálum ís með nýju gjaldtökunni sagði hann; „Nei, það vona ég ekki, við erum afskaplega umburðarlynd og skilningsrík í uppsveitunum, þannig að ég á ekki von á því að það verði neinir eftirmálar af þessu.“
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fleiri fréttir Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Sjá meira