Bjarni líkir höftunum við rottueitur Jakob Bjarnar skrifar 19. febrúar 2015 15:30 Ef Ísland á ekki að drepast eins og úr smáum reglulegum skömmtum rottueiturs, er algjör nauðsyn að aflétta hér höftum.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir fjármagnshöftin sem íslenskt efnahagslíf býr við seigdrepandi og líkti þeim við rottueitur. „Þetta er eins og að taka reglulega inn rottueitur í smáum skömmtum. Þú finnur ekki fyrir áhrifunum, ekki milli daga, jafnvel milli vikna en smátt og smátt munu afleiðingarnar reynast alvarlegar.“ Bjarni lét þessa skoðun uppi í forsíðuvitali nýs tölublaðs Hjálma, sem er blað hagfræðinema við HÍ. Viðtalið er ítarlegt og þar segir Bjarni meðal annars: „Það er alveg skýrt í mínum huga að við þurfum að losna við höftin. Þau eru afar skaðleg til langs tíma, en þau geta hins vegar verið hjálpleg til skamms tíma til að ná jafnvægi í þjóðarbúinu. Það sem skiptir máli er að það jafnvægi sé á raungengi sem er í einhverjum takti við það sem við erum að framleiða. Við sjáum það á viðskiptajöfnuðinum núna að raungengið virðist ekki vera langt frá því að endurspegla þá framleiðslu sem við stöndum undir í dag. Að þessu leytinu til hafa höftin verið gagnleg, en þau voru ávallt bara hugsuð sem skammtímaúrræði. Jafnvel þó það kunni að vera auðvelt að aðlagast höftunum eftir því sem tíminn líður og maður verður minna var við þau, þá er þetta dálítið eins og rottueitur. Þú tekur þetta í litlum skömmtum og þú finnur ekki endilega bragðið af því, en þetta safnast fyrir í líkamanum og drepur þig fyrir rest. Það er það sem gerist með höftin yfir tíma, þau bjaga alla verðmyndun og hvatarnir verða allir skakkir.“ Bloomberg vitnar jafnframt í orð Bjarna. Þar er því lýst að flestir Íslendingar leiði ekki hugann að haftabúskapnum sem tekinn var upp eftir hrunið 2008, enda virðist allt í sómanum á yfirborðinu; þess er vænst að hagvöxtur verði um fjögur prósent, atvinnuleysi er undir fjórum prósentum, gjaldmiðillinn virðist stöðugur og tekist hefur að halda verðbólgu í skefjum. En, þessi mynd er bjöguð, eða fölsk, vegna fjármálahaftanna. Innlendir fjárfestar komast hvergi með peninga sína og fjárfesta í því sem þeir finna innan markaðarins og erlend fjárfesting er engin.(Uppfært 16.30. Skv. ábendingu en Vísir mælir sérstaklega með viðtali hagfræðinema við fjármálaráðherra.)
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Sjá meira