Ætlaði að „pakka þeim saman“ Samúel Karl Ólason skrifar 19. febrúar 2015 20:03 Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Daníel
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni. Honum er gert að hafa veist að lögreglumönnum fyrir utan World Class í Kringlunni þann 31. desember árið 2012. Hann ýtti við þeim og sló ítrekað til þeirra hnefahöggum sem geiguðu. Þá á hann að hafa sagst ætla að pakka þeim saman. Lögreglu hafði borist beiðni um aðstoð vegna manns sem sæti í kyrrstæðri bifreið, en samkvæmt tilkynningunni virtist hann vera veikur eða í annarlegu ástandi. Lögreglumenn segja að hann hafi verið sofandi þegar þeir komu á vettvang og að þeir hefðu reynt að vekja hann. Þá segir í skýrslu lögreglunnar að hann hafi greinilega verið í annarlegu ástandi. Þegar þeim tókst að vekja hann fengu þeir hann til að stíga úr bílnum. Hann fór þó aftur inn í bílinn og reyndi að loka dyrunum. Þegar lögreglumennirnir reyndu að fá hann út aftur brást hann illa við og „verið með ógnandi tilburði, rifið sig úr úlpu og ætt að þeim,“ eins og segir í dómnum. Lögreglumennirnir drógu upp kylfur og fékk hann minnst tvö högg á meðan á þessu stóð. Þá mun maðurinn hafa hlaupið inn í líkamsræktarstöðina, þar sem hann var yfirbugaður. Maðurinn neitaði hins vegar sök. Hann sagði að hann hefði vaknað við bank lögreglumannanna og opnað dyrnar. Hann segist ekki hafa viljað stíga út í fyrstu en hann hafi gert það á endanum. Þá segir hann að lögreglumennirnir hafi slegið sig með kylfum og þá hafi hann hlaupið inn í líkamsræktarstöðina, þar sem hann var yfirbugaður með varnarúða. Hann sagðist ekki hafa verið í annarlegu ástandi, né hafi hann verið ógnandi við lögreglumennina. Héraðsdómur sagði lýsingar lögreglumannanna á atvikinu hafa verið samhljóma og bendir á að í tilkynningunni til lögreglunnar hafi maðurinn verið sagður veikur eða í annarlegu ástandi. Dómnum þótti sannað að hann hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefið að sök.Dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Sjá meira