Kom ekki til greina að setja viðbótarkvóta á uppboð Höskuldur Kári Schram skrifar 1. febrúar 2015 18:44
Sjö útgerðarfyrirtæki munu væntanlega hagnast um marga milljarða útaf þeirri ákvörðun Hafrannsóknarstofnunar að auka loðnukvótann um 320 þúsund tonn. Sjávarútvegsráðherra segir að það hafi ekki komið til greina að setja þennan viðbótarkvóta á uppboð. Hafrannsóknarstofnun hefur ákveðið að auka loðnukvótann um 320 þúsund tonn sem er rúmlega tvöföldun frá upphaflegri ráðgjöf. Talið er að útflutningsverðmætið nemi um 25 millljörðum króna. Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra segir þetta vera góðar fréttir fyrir íslenskt efnahagslíf. „Þetta mjög ánægjulegt fyrir það að stofninn sé í góðu standi, lífríkið í góðu standi og auðvitað eru þetta frábærar fréttir fyrir efnahagslíf Íslendinga,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra. Sjö útgerðarfyrirtæki eiga rúmlega 90 prósent af kvótanum, þar af á Ísfélagið í Vestmannaeyjum mest eða tæplega 20 prósent. Ljóst er að þessi fyrirtæki munu hagnast verulega á þessari aukningu eða um marga milljarða. Sigurður segir að það hafi þó ekki komið til greina að bjóða kvótann út til hæstbjóðenda. „Nei við höfum mjög gott kerfi á þessu. Þessi fyrirtæki eiga auðvitað ekki kvótann. Hann er eign þjóðarinnar. Þeir hafa nýtingarréttinn og þetta kerfi virkar mjög vel. Fyrirtækin eru dreifð um allt land. Sem betur fer víða hringinn í kringum landið og flest á austurhorni landsins hvað fjærst höfuðborgarsvæðinu. Þannig að dreifing teknanna inn í samfélagið er mjög jákvæð,“ segir Sigurður.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Sjá meira