Rafrænar íbúakosningar í fjórða sinn Stefán Árni Pálsson skrifar 3. febrúar 2015 11:25 Kosið er á milli allt að 20 hugmynda í tíu hverfum borgarinnar. mynd/aðsend
Rafrænar íbúakosningar undir merkinu Betri hverfi 2015 verða haldnar í Reykjavík dagana 17. – 24. febrúar nk. Þetta er í fjórða sinn sem slíkar kosningar eru haldnar um verkefni í hverfum borgarinnar en hugmyndirnar að verkefnunum eiga íbúarnir sjálfir. Allir sem eiga lögheimili í Reykjavík og eru orðnir 16 ára geta tekið þátt í kosningunum. Til að komast inn á kosningavefinn verða íbúar að eiga Íslykil eða rafræn skilríki til auðkenningar og er nauðsynlegt að hafa slík auðkenni tiltæk áður en haldið er á „kjörstað“ í tölvunni sinni eða spjaldtölvu. Kosið er á milli allt að 20 hugmynda í tíu hverfum borgarinnar. Hugmyndum að verkefnum í hverfum borgarinnar var safnað í október á síðasta ári og bárust 690 hugmyndir frá íbúum inn á vefinn Betri hverfi 2015 sem var metfjöldi í hugmyndasöfnun fyrir hverfin. Alls hafa verið verðmerktar hugmyndir að verkefnum fyrir rúmlega 820 milljónir króna en fjárheimild hverfanna er um 300 milljónir á þessu ári. Í kosningunum forgangsraða íbúar verkefnum í sínum hverfum. Niðurstöður kosninganna eru bindandi fyrir Reykjavíkurborg sem skuldbindur sig til að framkvæma þau verkefni sem kosin eru. Þegar hafa verið framkvæmd verkefni fyrir 900 milljónir króna sem kosin hafa verið af íbúum í Reykjavík sl. þrjú ár. Með kosningunum núna hefur Reykjavíkurborg alls lagt 1.200 milljónir króna í að framkvæma hugmyndir íbúa í hverfum borgarinnar. Hægt er að kynna sér verkefnin sem kosið verður um í Betri hverfi 2015 hér: https://reykjavik.is/betrihverfi
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Fleiri fréttir „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Sjá meira