Frakkar kaupa Segulskekkju Soffíu Jakob Bjarnar skrifar 3. febrúar 2015 16:40 Segulskekkja Soffíu arkar nú af stað út í hinn stóra heim. Egill Örn segir franska forlagið Zulma hafa staðið vel að útgáfum íslenskra skáldverka.
Soffía Bjarnadóttir sendi fyrir jólin frá sér sína fyrstu skáldsögu: Segulskekkja og hlaut hún einróma lof gagnrýnenda. Forlagið var að ganga frá samningum við Zulma, franskt forlag, um að Segulskekkja verði gefin út í Frakklandi. Hlýtur það að teljast talsverð upphefð fyrir hinn unga höfund. Að sögn Egils Arnar Jóhanssonar, framkvæmdastjóra Forlagsins, hefur Zulma tekið ástfóstri við Ísland og íslenska höfunda og hafa til að mynda gefið út verk eftir Andra Snæ og Auði Övu. Egill Örn segir það liggja í augum uppi að þetta margfaldi lesendahóp Auðar, sem nú er að skrifa fyrir miklu stærra málsvæði en hið íslenska; málsvæði sem telur tugi milljóna. „Þetta forlag hefur staðið sérlega vel að útgáfu íslensku höfundanna sinna til þessa,“ segir Egill Örn. Í umfjöllun Vísis um hin Íslensku bókmenntaverðlaun var vitnað í orð Egils Helgasonar sem talar um gullöld bókmenntanna í þeim skilningi að íslenskir höfundar eru nú að skrifa fyrir Frakkland, Þýskaland og í raun allan heiminn. Nafni hans Örn tekur heilshugar undir það. „Á undanförnum árum hefur réttindasala á íslenskum bókum til erlendra útgefenda gengið vel. Að sjálfsögðu hafði það jafnframt góð áhrif fyrir íslenskar bókmenntir á erlendri grundu þegar við vorum í heiðurshlutverki á stærstu bókamessu heims í Frankfurt 2011.“ En, hvaða höfundar eru að ná mestum vinsældum á erlendum vettvangi? Egill segist ekki geta talað fyrir önnur forlög, sem eru sum hver með öfluga höfunda á sínum snærum, þó Forlagið sé stærst. Og sumir eru á eigin vegum. En nefnir dæmi um höfunda á borð við Arnald, Yrsu, Andra Snæ, Jón Kalmann, Auði Övu, Sjón og reyndar fleiri nöfn höfunda sem hafa verið að gera það ágætt á erlendum vettvangi. Og svo selst nóbelsskáldið alltaf einnig. Og Einararnir bæðir tveir, Már og Kárason á sumum svæðum svo sem á Norðurlöndum.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Sjá meira