Segir félagslega virkni innflytjenda forsenda þess að njóta fjölbreytni Stefán Árni Pálsson skrifar 20. janúar 2015 10:39 Eygló benti á mikilvægi þess að stjórnvöld hafi í huga við alla stefnumótun að fjölmenning styrki innviði samfélagsins. Vísir/VILHELM
Velferðarráðuneytið og innflytjendaráð efndu til opins fundar um Þróunarsjóð innflytjendamála föstudaginn 16. janúar en þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.Þróunarsjóðurinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007 og hafa rúmlega eitt hundrað verkefni hlotið styrk úr sjóðnum. Sjóðurinn hefur 10 milljónir króna til ráðstöfunar árlega – og við hverja úthlutun leggja stjórnvöld áherslu á ákveðna þætti sem þau telja ástæðu til að styrkja sérstaklega. Lögð hefur verið áhersla á að styrkja fjölbreytt verkefni og sem dæmi má nefna leikrit, útvarpsþætti, fræðslu gegn fordómum, vinnumarkaðsúrræði og fjölda rannsókna. Við hverja úthlutun hafa stjórnvöld lagt áherslu á ákveðna þætti sem þau telja ástæðu til að styrkja sérstaklega. Dagskrá kynningarfundarins var tvíþætt. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, gerði grein fyrir áherslum stjórnvalda við úthlutun úr sjóðnum árið 2015 og styrkþegar ársins 2014 fluttu kynningar á verkefnum sínum. Í máli Eyglóar kom fram að á vorþingi verður lögð fram fyrsta lögbundna framkvæmdaáætlunin í málefnum innflytjenda og byggja áherslur Þróunarsjóðsins í ár á meginefni hennar. Framkvæmdaáætlunin er sett saman úr fjórum stoðum sem snúa að samfélaginu, málefnum fjölskyldna, menntun og vinnumarkaði. Hún nær til áranna 2015–2018 og tilgreinir 24 verkefni á málefnasviðum þriggja ráðuneyta. Gerð er tillaga að margvíslegum verkefnum sem meðal annars snúa að mælingum á viðhorfum samfélagsins til innflytjenda og fjölmenningar, greiningu og aðgerðum gegn brottfalli nemenda af erlendum uppruna í framhaldsskólum landsins og veitingu hvatningarverðlauna til þeirra sem gera vel í málefnum innflytjenda svo einhver dæmi séu nefnd. Eygló benti á mikilvægi þess að stjórnvöld hafi í huga við alla stefnumótun að fjölmenning styrki innviði samfélagsins. Hún vék að atburðum síðustu vikna í Evrópu og sagði að fræðsla væri besta forvörnin gegn fordómum. „Félagsleg virkni innflytjenda á öllum sviðum þjóðlífsins er einnig nauðsynleg vegna þess að hún er forsenda þess að við öll fáum notið þeirrar fjölbreytni sem fjölmenningarsamfélagið byggir á,“ sagði Eygló. Á fundinum voru kynnt þrjú verkefni sem hlutu styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála árið 2014. Dr. Hallfríður Þórarinsdóttir, mannfræðingur og forstöðumaður MIRRA, miðstöðvar innflytjendarannsókna við Reykjavíkur Akademíuna og Anna Woytynska, doktorsnemi í mannfræði, kynntu fyrstu niðurstöður rannsóknar sinnar á húsnæðisaðstæðum pólskra innflytjenda á höfuðborgarsvæðinu. Elísabet Karlsdóttir, framkvæmdastjóri Rannsóknarstofnunar í barna- og fjölskylduvernd kynnti rannsókn um þróun á sambandi pólskrar og íslenskrar menningar og aðstandendur félagsins Projekt Polska, sem er vettvangur fyrir fólk sem vill byggja upp menningarleg samskipti milli Íslands og Póllands kynntu nýja heimasíðu félagsins. Projekt Polska var stofnað árið 2012 af hópi Pólverja sem býr á Íslandi eða er tengdur landinu á einn eða annan hátt.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira