Dæmi um að loftbyssa hafi verið notuð í Hagaskóla Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 21. janúar 2015 18:58
Börn í Hagaskóla hafa orðið fyrir hótunum og ofbeldi í skólanum síðustu mánuði. Lögregla hefur verið kölluð til og eru dæmi um að loftbyssa hafi verið notuð. Skólastjórinn segir unnið að lausn málsins en að ákveðið úrræðaleysi sé til staðar í málum sem þessum. Frá því síðasta haust hafa nokkur atvik komið upp í skólanum þar sem nemendum er hótað eða þeim ógnað. „ Þetta hafa verið atvik frá hótunum um að sníkja peninga, notkun á til dæmis loftbyssum og svo bara svona hótanir,“ segir Ingibjörg Jósefsdóttir skólastjóri í Hagaskóla. Hún segir skólastjórnendur fyrst hafa fengið upplýsingar um það síðasta haust að nemendum við skólann hafi verið hótað. Gerendurnir eru nokkrir og aðeins hluti þeirra nemendur við skólann. Málið hefur undið nokkuð upp á sig og atvikin orðið alvarlegri. „Það var barn hér fyrir helgi sem að sá á,“ segir Ingibjörg. Þá kom til þess í vikunni að faðir drengs sem hefur verið ógnað í skólann til að ræða við gerandann og sauð upp úr. Lögreglan hefur fengið tilkynningar vegna ógnanna í garð nemenda við skólann. Hún hefur mætt á staðinn og rætt við hluteigandi aðila og sent tilkynningar til Barnaverndaryfirvalda. Skólastjórnendur hafa unnið með þessum aðilum ásamt fleiri fagaðilum að því að leysa málið. Ingibjörg segir hægt að vísa nemendum úr skóla en það hafi ekki verið gert í þessu máli. Hún segir ákveðið úrræðaleysi þegar kemur að málum sem þessum. Hún segir nokkuð um að foreldrar hafi samband við skólann og margir þeirra hafi áhyggjur af stöðunni. „ Við líka hvetjum foreldra til þess að hafa samband við okkur, “ segir Ingibjörg Jósefsdóttir skólastjóri Hagaskóla.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira