Fjármálaráðherra heimsækir gagnaver á Reykjanesi Stefán Árni Pálsson skrifar 22. janúar 2015 11:23 Bjarni Benediktsson ásamt Almari Guðmundssyni. mynd/aðsend
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra verður í skoðunarferð á Reykjanesi í dag þar sem hann heimsækir gagnaver á vegum Advania og Verne í boði Samtaka gagnavera á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum Iðnaðarins. Markmiðið með heimsókninni er að vekja athygli stjórnvalda á hinum ört vaxandi gagnaversiðnaði hér á landi og tækifærunum sem í honum felast, m.a. til að fjölga störfum sem krefjast mikillar tækniþekkingar. Heimsókn Bjarna hófst í gagnaveri Advania, Mjölni á Fitjum, þar sem Eyjólfur Magnús Kristinsson, formaður DCI Samtaka gagnavera og Gestur G. Gestsson forstjóri Advania kynntu fyrir Bjarna uppbyggingu þessa nýja gagnavers sem telur um 2.500 fermetra og hóf rekstur sl. sumar. Því næst var haldið í gagnaver Verne að Ásbrú en forsvarsmenn þess, Isaac Kato og Helgi Helgason, kynntu fyrir fjármálaráðherra fyrirhugaða stækkun gagnaversins í kjölfar vel heppnaðs hlutafjárútboðs nýverið á meðal íslenskra og erlendra fjárfesta. Með í för eru Kolbeinn Kolbeinsson og Eyjólfur Á. Rafnsson stjórnarmenn SI, Gunnar Zoëga og Finnur Oddsson frá Nýherja ásamt Katrínu D. Þorsteinsdóttur, forstöðumanni hugverkaiðnaðar hjá SI og Svanhildi Hólm Valsdóttur, aðstoðarmanni fjármálaráðherra. „Mikil vaxtatækifæri eru í rekstri gagnavera á Íslandi. Möguleikar Íslands felast fyrst og fremst í endurnýjanlegri orku, samkeppnishæfu orkuverði, náttúrulegri kælingu, tækniþekkingu, mannauði og stöðugu stjórnamála- og efnahagsumhverfi. Sem dæmi um vöxt iðnaðarins á Íslandi hafa orkukaup hans aukist úr 1 MW í 20 MW á einungis 2 árum og gerir Landsvirkjun ráð fyrir að orkusala til gagnavera verði komin 100 MW innan 5 ára,“ segir Almar Guðmundsson, framkvæmdarstjóri SI.mynd/aðsendmynd/aðsendmynd/aðsendmynd/aðsendmynd/aðsend
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira