Bílamál Sigmundar óljós: Velja á milli sex tilboða Stefán Árni Pálsson skrifar 12. janúar 2015 15:19 Sigmundur Davíð mun fá nýjan bíl til umráða. visir/valli
Stjórnarráðið hefur haft til skoðunar þann möguleika að festa kaup á bifreið fyrir forsætisráðuneytið, sem leysa myndi af hólmi 11 ára gamla bifreið sem forsætisráðherra hefur nú til afnota. Á grundvelli rammasamnings fór fram örútboð á vegum Ríkiskaupa, þar sem sex bílaumboðum bauðst að taka þátt. Ekki hefur verið tekin afstaða til innsendra tilboða og því hefur engu tilboði verið tekið. Viðskiptablaðið greindi frá því í morgun að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, myndi fá BMW 7 til umráða en í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að það sé alfarið rangt. Fréttin hefur nú verið tekin úr birtingu.Skjáskot.„Núverandi bifreið ráðuneytisins er af gerðinni BMW af árgerð 2004. Bifreiðin hefur verið á verkstæði undanfarnar vikur þar sem hún bíður viðgerðar vegna bilunar í sjálfskiptingu. Bifreiðin er ekin um 300 þúsund kílómetra, hún er óökufær sem stendur og krefst verulegs viðhalds- og rekstrarkostnaðar. Athugun ráðuneytisins á kaupum á nýrri bifreið hefur tekið mið af því, en rétt er að ítreka að ekki hefur verið tekin ákvörðun í málinu,“ segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Samkvæmt viðmiðum Stjórnarráðsins þurfa bifreiðar ráðuneytanna að uppfylla tilteknar öryggis- og gæðakröfur og eru tilboð m.a. metin út frá þeim. Upplýst verður um niðurstöðuna þegar hún liggur fyrir.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira