Leitast við að sauðfé og geitur geti lifað í samræmi við eðlilegt atferli sitt Stefán Árni Pálsson skrifar 15. janúar 2015 09:50 Tilgangur reglugerðarinnar er að tryggja velferð og heilbrigði alls sauðfjár og geitfjár með góðri meðferð, umsjá og aðbúnaði. Vísir/Magnús Hlynur
Út er komin reglugerð um velferð sauðfjár og geitfjár byggð á nýjum lögum um velferð dýra auk laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim en þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun. Eldri reglugerð um aðbúnað og- umhirðu sauðfjár og geitfjár fellur þar með úr gildi. Tilgangur reglugerðarinnar er að tryggja velferð og heilbrigði alls sauðfjár og geitfjár með góðri meðferð, umsjá og aðbúnaði. Leitast skal við að sauðfé og geitur geti lifað í samræmi við eðlilegt atferli sitt eins og framast er kostur. Í reglugerðinni koma fram lágmarkskröfur um einstök atriði. Meðal nýmæla má nefna að hver sem ætlar að eignast sauðfé eða geitfé skal tilkynna það til Matvælastofnunar svo tryggt sé að lögbundnar skráningar, merkingar og eftirlit geti hafist. Einnig er kveðið á um að umráðamaður eða sá sem sinnir kindum eða geitum hafi hæfni og þekkingu á þörfum dýranna auk líkamlegrar og andlegrar getu til þess að annast dýrin. Í reglugerðinni eru ákvæði um að dýralæknum sé einum heimilt að afhorna kindur og geitur þannig að fari inn í sló og gelda karldýr. Skylt er að nota deyfingu við þær aðgerðir og nota skal langverkandi verkjalyf þar sem það á við. Einnig er að finna ákvæði er kveður á um að við pörun skuli varast að æxla saman dýrum sem vitað er að gefa afkvæmi sem valda verulegum burðarerfiðleikum. Í byrjun árs 2023 tekur gildi ákvæði er varðar gólf þar sem málmristar eða málmgrindur eru í stíugólfum. Eftir gildistöku ákvæðisins skal 40% af gólffletinum, hið minnsta, vera með legusvæði úr timbri eða öðru efni með samsvarandi eða minni varmaleiðni en timbur. Skerpt er á nokkrum ákvæðum frá eldri reglugerð s.s. að fé sem haldið er úti yfir vetur skal haft í fjárheldum girðingum þannig að eftirlit sé framkvæmanlegt fram yfir sauðburð, öllu sauðfé og geitfé skal tryggt nægilegt húsaskjól að vetrarlagi og skal á hverjum tíma vera hægt að sýna fram á að slíkt rými sé til staðar fyrir vetrarfóðraðar kindur. Einnig er skerpt á því að sauðfé og geitum skal tryggður aðgangur að nægu vatni í húsum á meðan þau eru á innistöðu. Með reglugerðinni eru tveir viðaukar, sá fyrri fjallar um lágmarksstærðir húsa, innréttinga og búnaðar en sá seinni tilgreinir hvernig eigi að meta holdafar og hjálpar þannig við að meta fóðurástand gripa.
Mest lesið „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent „Mjög, mjög sorglegt“ Erlent Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Innlent Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök Innlent Eric Dane er látinn Lífið Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Erlent Meirihluti vill frekar tvö stutt vetrarfrí en eitt lengra Innlent Herðir á frosti í kvöld Veður Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews Erlent Fleiri fréttir Bráðamóttakan megi ekki vera „forarpyttur sýkinga og hættu“ Meirihluti vill frekar tvö stutt vetrarfrí en eitt lengra Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök „Áratuga afturför“ og frost í greininni Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Jötunheimar á Selfossi verður tólf deilda leikskóli „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Lögregla fylgdist með netsvikum í rauntíma Sérsveitin kölluð út en engum skotum reyndist hleypt af Söguleg handtaka og umdeildir skannar Brotist inn í leikskóla í Reykjavík Allt tiltækt slökkvilið slökkti sinueld Bráðabirgðaákvæði um kosningar í Grindavík samþykkt á þingi Hollenski skákmeistarinn og Íslandsvinurinn Jan Timman er látinn Braut ítrekað á stjúpdóttur og bar fyrir sig kynferðislega svefnröskun Rannsóknarprófessor og stofnandi Bláa lónsins hlutu Ásuverðlaunin Níu ára fangelsi fyrir að nauðga fatlaðri konu ítrekað Skipulagsstofnun lögð niður Finnst Samfylkingin hafa komið ómaklega fram við sig Tíu ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Kiðjabergi Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Rósa Björk býður sig fram í formann VG Framkvæmdir við Fontana trufluðu hitaveitu á Laugarvatni Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Árekstur á Sprengisandi Vistmenn á Hjalteyri krefjast bóta sem þeim var lofað Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Guðmundi Inga hafnað „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Sjá meira