Gunnar Bragi ávarpaði öryggisráð SÞ: Bregðast þarf við þjáningum íbúa Gaza Atli Ísleifsson skrifar 15. janúar 2015 20:43 Gunnar Bragi Sveinsson er staddur í New York. Mynd/Utanríkisráðuneytið
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra ávarpaði öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í New York í dag þar sem fjallað var um ástand mála í Miðausturlöndum. Ráðherra sagði að í ljósi átakanna í Sýrlandi og annarra átaka í heimshlutanum væri brýnt að leysa deilu Ísraels og Palestínu. Lagði hann áherslu á að báðir deiluaðilar sýni í verki vilja sinn til að ná sátt á grundvelli tveggja ríkja lausnarinnar og grípi ekki til aðgerða sem grafi undan því markmiði. Hann gagnrýndi áframhaldandi landtöku ísraelskra stjórnvalda og ítrekaði að landtökubyggðir þeirra séu brot á alþjóðalögum. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að Gunnar Bragi hafi lýst miklum vonbrigðum með að ekki hafi náðst samkomulag innan öryggisráðsins um að settur verði tímarammi fyrir lausn deilunnar og sagði hann brýnt að ráðið hefði meira frumkvæði hvað lausn hennar áhrærir. „Hann sagði áríðandi að bregðast við þjáningum íbúa Gaza og að herkví svæðisins verði að ljúka. Mikilvægt sé að palestínsk yfirvöld taki ábyrgð á stjórn Gaza og sagði hann að vígaferli sem eigi uppruna sinn þar séu óásættanleg. Þá lýsti Gunnar Bragi ánægju með aðild Palestínu að Alþjóðlega sakamáladómstólnum og hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna.“
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira