Tveggja ára hlaut slæm sár á fæti eftir sundferð á Akureyri Bjarki Ármannsson skrifar 19. janúar 2015 21:45 Tveggja ára sonur Petru hlaut sárin eftir sundferð í gær. Vísir/Auðunn „
Þau eru náttúrulega með viðkvæma húð, krakkarnir, en ég hef aldrei lent í þessu svona,“ segir Petra Sif Stefánsdóttir um sárin sem tveggja ára sonur hennar hlaut eftir ferð í Sundlaug Akureyrar í gær. Hún deildi myndum af sárunum í lokuðum Facebook-hópi þar sem fleiri mæður segja börnin sín hafa fengið svipuð sár eftir heimsókn í sundlaugina.Nýlega skipt um botn í pottum Petra segir að son hennar svíði ennþá mjög og að fætur hans séu mun rauðari en meðfylgjandi myndir gefi til kynna. „Fæturnir líta mjög illa út,“ segir hún. „Það voru fyrst svona brunablöðrur og núna eru þeir allir úti í sárum.“ Hún segir að drengurinn hafi verið að skríða á hnjám í grunnum potti í lauginni þar sem gúmmíefni er í botninum. Hún hafi síðast farið með hann í laugina síðasta sumar, þá hafi hann fengið einhver nuddsár í kjölfarið en mun vægari. Þær upplýsingar fengust frá starfsmanni Sundlaugar Akureyrar að skipt hafi verið um gúmmí á botninum á tveimur pottum nú í vetur.Hyggst láta starfsfólk vita Í ummælum við myndir Petru í hópnum „Múttur á Akureyri“ segja nokkrar konur svipaða sögu af börnum sínum og tengja sárin við ferðir í laugina. „Ég lenti í þessu um daginn með stelpuna mína,“ skrifar ein. „Hún var einmitt mikið að leika sér og hoppa ofan í og svona ... voru einmitt fyrst blöðrur sem svo urðu að sárum eins og á myndinni.“ Tvær ráðleggja Petru að hafa samband við starfsfólk laugarinnar og láta vita af þessu. Í samtali við Vísi segist hún ætla að senda þeim myndir af sárum sonar síns á morgun.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira