Fimm ár frá jarðskjálftanum á Haítí Stefán Árni Pálsson skrifar 8. janúar 2015 10:07 Systur sem fengu nýtt heimili hjá SOS eftir skjálftann. vísir/sos
Þann 12. janúar næstkomandi eru fimm ár liðin frá jarðskjálftanum mikla á Haítí. Yfir 220 þúsund manns létust í hamförunum og um 300 þúsund slösuðust. Eyðileggingin var gríðarleg, einkum í höfuðborginni, Port-au-Prince. Í tilkynningu frá SOS Barnaþorpum kemur fram að samtökin hafi starfað á Haítí frá árinu 1979 og hafa því mikla reynslu af hjálparstarfi á staðnum. Strax í kjölfar skjálftans hófu samtökin neyðaraðstoð en um er að ræða umfangsmestu neyðaraðstoð sem samtökin hafa sinnt. SOS Barnaþorpin settu upp 112 starfsstöðvar í Port-au-Prince þar sem nauðstöddum var boðinn heitur og næringarríkur matur. Alls fengu 24 þúsund börn og fjölskyldur þeirra aðstoð á þessum starfsstöðvum. Þá veittu sérfræðingar SOS fjölskyldum áfallahjálp og læknisaðstoð ásamt því að skipuleggja kennslu og tómstundir fyrir þúsundir barna. SOS Barnaþorpið í Santo tók við 400 börnum sem misst höfðu ættingja sína eða orðið viðskila við þá í hamförunum. SOS reyndu að hafa uppi á ættingjum barnanna en því miður var það ekki alltaf mögulegt og því fékk fjöldi barna varanlegt heimili hjá SOS Barnaþorpunum. Ekki var pláss fyrir öll þessi börn í barnaþorpinu í Santo og því reistu samtökin bráðabirgðahúsnæði fyrir börn og SOS mæður. Markmiðið var þó alltaf að byggja nýtt SOS Barnaþorp sem nú er tilbúið. Þorpið er staðsett í Les Cayes og verður formlega opnað laugardaginn 10. janúar. Fjölskyldurnar hafa þó flutt inn á nýju heimilin. Þá standa yfir endurbætur á SOS Barnaþorpinu í Santo en þorpið hefur látið á sjá vegna álags eftir að börnum í þorpinu fjölgaði svo skyndilega. Utanríkisráðuneyti Íslands kom meðal annars að fjármögnun verkefnisins með 11,9 milljóna króna framlagi. Í dag eru þrjú SOS Barnaþorp starfandi á Haítí en þar hafa yfir 500 börn fengið nýtt heimili. Þá reka samtökin 26 samfélagsmiðstöðvar í Port-au-Prince þar sem 3000 börn fá aðstoð og 16 samfélagsmiðstöðvar í Cap Haiten þar sem 800 börn fá aðstoð. Einnig reka samtökin skóla, leikskóla og verknámsskóla í landinu en 29 Íslendingar styrkja börn í tveimur SOS Barnaþorpum á Haítí.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira