Tvískiptar metanbifreiðar í sorphirðunni Stefán Árni Pálsson skrifar 9. janúar 2015 09:43 vísir/reykjavíkurborg.
Sorphirða Reykjavíkurborgar hefur fengið þrjá nýja metanknúna Scania bíla til að sinna losun grárra og blárra tunna í borginni og mun fá þann fjórða á næstu dögum. Þrír þeirra eru með tvískiptum kassa til losunar á tveimur úrgangsflokkum í einu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Við losun grárra og blárra tunna þarf nú einungis að keyra hverja götu einu sinni og minnkar það akstur og eykur hagræði í losun ílátanna. Pappírsefnin í bláu tunnunum fara til endurvinnslu í Svíþjóð en blandaði úrgangurinn úr gráu tunnunum og spartunnunum fer til urðunar í Álfsnesi. Einn bíllinn er með krana, sem gerir kleift að losa djúpgáma og stærri ílát en áður. Metanið, sem knýr bílana, er fengið úr hauggasi sem streymir úr urðunarstaðnum í Álfsnesi og hefur nýting þess mikinn ávinning í för með sér þar sem það kemur í stað jarðefnaeldsneytis. Sorphirðu í Reykjavík hefur verið sinnt af 9 metanbílum frá árinu 2008 og starfsfólkið hefur verið rúmlega 50 manns. Ætlunin er að skipta út öllum bílum sorphirðunnar á næstu árum.Betri aðstæður fyrir sorphirðufólk Nýju bílarnir bæta vinnuaðstæður starfsfólk sem sinna hirðu úrgangsíláta í borginni þar sem þeir eru útbúnir með helstu nýjungum sem hafa orðið á búnaði sorpbifreiða á síðustu árum. 47.581 tunnuígildi eru í Reykjavík í dag, þar af eru um 12.493 blár tunnur undir pappírsefni.Hundruð tonna á hvern starfsmann Árið 2014 voru hirt alls 18.085 tonn af blönduðum úrgangi og 3.266 tonn af pappírsefnum eða samtals 176 kg á ári á hvern íbúa Reykjavíkur. Magn flokkaðra pappírsefna sem skilað er í bláu tunnuna hefur aukist um 27% frá því á síðasta ári. Þetta jafngildir að hver starfsmaður við sorphirðu handleiki að jafnaði um 450-500 tonn af úrgangi yfir árið. „Reykvíkingar munu taka eftir því að tvískiptur bíll losar gráu og bláu tunnuna í einni ferð en pappírsefnum er haldið aðskildum og flutt til endurvinnslu,“ segir Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar og bætir því við að með þessari breytingu minnki akstur sorpbíla um borgina sem dregur úr kostnaði og minnkar umhverfisáhrif.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira